Leikskólanefnd - 25. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sesselja Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Arnþór Sigurðsson - formaður
- Sigurrós Þorgrímsdóttir - aðalfulltrúi
- Rakel Ýr Isaksen - áheyrnarfulltrúi
- Gunnlaugur Snær Ólafsson - varafulltrúi
- Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Áslaug Pálsdóttir - vara foreldrafulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- María Munda Kristófersdóttir - varamaður
- Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir
Dagskrá fundar
Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlun leikskólans Aðalþings.
Leikskólanefnd samþykkir leyfi til daggæslu barna.
Leikskólafulltrúa falið að finna erindinu réttan farveg.
Leikskólanefnd samþykkir beiðnina og óskar eftir að fá sendar niðurstöður rannsóknar til kynningar.
Fundargerðir þriggja síðustu funda lagðar fram
Leikskólanefnd ítrekar fyrri bókun sína varðandi sama mál frá fundi nefndarinnar 6. desember síðastliðinn og bendir á að þetta er hugsað sem tímabundin ráðstöfun vegna umrædds lögbundins verkefnis þetta eina skólaár, 2012-2013, en ekki sem viðbótarskipulagsdagar í leikskólum Kópavogs.
Lagt fram. Nefndin fagnar þeim árangri sem náðst hefur við samræmingu skipulagsdaga leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2012-2013.