Menntasvið-sameiginlegir skipulagsdagar leik- og grunnskóla.
Málsnúmer: 1107041
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 89. fundur
Tillaga um skipulagsdaga í leik- og grunnskólum fyrir skólaárið 2018-2019.
Leikskólanefnd samþykkir tillögu um skipulagsdaga í leik- og grunnskólum skólaárið 2018-2019.
02
Menntaráð - 19. fundur
Tillaga um skipulagsdaga í leik- og grunnskólum fyrir skólaárið 2018 -2019 lögð fram.
Menntaráð lýsir ánægju sinni með hversu vel hefur tekist til við samræmingu skipulagsdaga í leik- og grunnskólum bæjarins.
03
Leikskólanefnd - 76. fundur
Leikskólanefnd samþykkir með öllum greiddum atkvæðum tillögu að samræmdum skipulagsdögum. Leikskólanefnd telur nauðsynlegt að setja reglur um meðferð umsókna og skilyrða til að fá breytingu á samþykktum skipulagsdögum.
04
Skólanefnd - 110. fundur
Tillaga skólastjórnenda í leik- og grunnskólum um skipulagsdaga á skólaárinu 2017 -2018 lagðar fram til afgreiðslu.
Skólanefnd samþykkir tillögu að skipulagsdögum með öllum greiddum atkvæðum.
05
Leikskólanefnd - 68. fundur
Leikskólanefnd samþykkir einróma fyrri hluta tillögunnar um samræmda skipulagsdaga leikskóla og grunnskóla. Atkvæðagreiðsla fór fram um seinni hluta tillögunnar, hálfan skipulagsdag skv. samþykkt leikskólanefndar 18. febrúar, sem færður yrði til 9. september eftir hádegi; Eiríkur Ólafsson, Gunnlaugur Snær Ólafsson, Magnús Helgi Björgvinsson og Signý Þórðardóttir greiddu atkvæði með tillögunni, en Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir greiddi atkvæði gegn tillögunni.
06
Skólanefnd - 99. fundur
Tillaga um vetrarfrí, skólasetningardag og skólaslit í grunnskólum Kópavogs fyrir skólaárið 2016-2017 lögð fram.
Skólanefnd samþykkir tillöguna með öllum greiddum atkvæðum.
07
Skólanefnd - 85. fundur
Tillaga um framkvæmd samræmingar.
Skólanefnd samþykkir tillögu með öllum greiddum atkvæðum.
08
Leikskólanefnd - 57. fundur
Tillaga var samþykkt með 4 atkvæðum. Eiríkur Ólafsson, Gunnlaugur Snær Ólafsson, Egill Örn Gunnarsson og Marteinn Sverrisson samþykktu, en á móti var Signý Þórðardóttir.$line$" Fulltrúar leikskólastjóra og starfsmanna mótmæla að sameiginlegur skipulagsdagur leikskóla verði 24.ágúst 2015. Ágústmánuður er viðkvæmur mánuður þar sem aðlögun nýrra barna fer fram, ekki er hægt að ganga út frá að allt starfsfólk hafi lokið sumarleyfum, einnig óvíst hvort búið sé að fullmanna skólana á þeim tíma. Tillaga að skipulagsdögum fyrir skólaárið 2015-2016 var sett fram á sameiginlegum fundi leik- og grunnskólastjóra út frá faglegum forsendum og óska leikskólastjórar eftir að stuðst verði við þá tillögu´´.$line$´´Helga María Hallgrímsdóttir og Signý Þórðardóttir harma ákvörðun nefndarinnar og telja fagleg rök fyrir því að leikskólastjórar tímasetji 5.daginn sjálfir. Sér í lagi í ljósi þess að skipulagsdögum hefur verið fækkað úr 6 í 5´´.
09
Skólanefnd - 81. fundur
Lagt fram til afgreiðslu.
Tillagan var samþykkt einróma eða með sjö atkvæðum.
10
Leikskólanefnd - 54. fundur
Formaður kynnti bréf leikskólastjóra. Hann lagði líka fram tillögu um fyrirkomulag skipulagsdaga. Menntasviði falið að leggja fram tillögur um hvernig best er að meta reynslu af fyrirkomulagi skipulagsdaga. Leikskólanefnd samþykkir tillöguna og að leikskólar skili skóladagatali þar sem fram koma lokunardagar fyrir 15. apríl.$line$Gunnlaugur Ólafsson og Jóhanna Heiðdal leggja fram eftirfarandi bókun: "Kjarni deilunnar um skipulagsdaga er fjöldi lokunardaga. Haft skal að leiðarljósi að skipulagsdagar leikskóla samræmist lokunardögum grunnskóla".
11
Skólanefnd - 80. fundur
Tillaga um fyrirkomulag skipulagsdaga skólaárið 2015 -2016 lögð fram.
Málinu frestað til næsta fundar vegna samráðs við leikskólanefnd.
12
Leikskólanefnd - 53. fundur
Tillaga um fyrirkomulag skipulagsdaga skólaárið 2015-2016 lögð fram.
Lagt fram og frestað til næsta fundar.
13
Bæjarráð - 2722. fundur
Skólanefnd vekur athygli bæjarráðs á erindi félags skólastjórnenda í grunnskólum Kópavogs, sbr. lið 7 í fundargerð skólanefndar 3. mars.
Lagt fram.
14
Skólanefnd - 69. fundur
Bréf frá félagi skólastjórnenda í Kópavogi lagt fram.
Skólanefnd vekur athygli bæjarráðs á erindi félags skólastjórnenda í grunnskólum Kópavogs.
15
Leikskólanefnd - 45. fundur
Nánari upplýsingar kynntar.
16
Leikskólanefnd - 44. fundur
Lögð fram áætlun menntasviðs um samræmda skipulagsdaga leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2014-2015.
17
Skólanefnd - 67. fundur
Skóladagatal fyrir skólaárið 2014 - 2015 lagt fram.
Skólanefnd samþykkir samræmt skóladagatal 2014 - 2015 fyrir leik- og grunnskóla.
18
Skólanefnd - 59. fundur
Ályktun frá KMSK um skóladagatöl, lögð fram.
Lögð fram.
19
Bæjarráð - 2685. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, lagt er til við bæjarráð að það staðfesti afstöðu skólanefndar vegna skólaársins 2013-2014 þar sem ljúka þarf vinnu við skóladagatöl sem allra fyrst.$line$$line$Í ljósi vilja bæjarstjórnar til að samræma skipulagsdaga fyrir sveitarfélagið í heild, sbr. tillögu í bæjarstjórn dags. 12. febrúar 2013, er hins vegar lagt til að menntasviði verði falið að stýra þeirri vinnu í samráði við skólastjóra og leikskólastjóra fyrir skólaárið 2014-2015.
20
Skólanefnd - 57. fundur
Niðurstöður könnunar meðal foreldra kynntar og svar frá mennta- og menningarmálaráðuneyti við fyrirspurn skólastjóra lagt fram.
Skólanefnd staðfestir fyrri bókun sína frá 26. 03. 2012 samanber fundargerð skólanefndar frá 4. febrúar 2013. Jafnframt áréttar skólanefnd að samkvæmt svari menntamálaráðuneytis getur bæjarstjórn í krafti yfirstjórnunarheimildar gefið skólastjórnendum fyrirmæli um samræmingu skipulagsdaga.
21
Bæjarstjórn - 1071. fundur
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$"Bæjarstjórn Kópavogs felur skólastjórum grunnskólanna í samstarfi við leikskólastjóra að vinna að samræmingu skipulagsdaga í Kópavogi í leik- og grunnskólum fyrir skólaárið 2013 - 2014.$line$Ómar Stefánsson"$line$Bæjarráð vísaði tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með fjórum atkvæðum gegn tveimur. Fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.
22
Bæjarráð - 2673. fundur
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi tillögu undir þessum lið:
23
Skólanefnd - 54. fundur
Lagt fram svar við fyrirspurn kennarafulltrúa á fundi skólanefndar þann 14. janúar 2013.
Erla Karlsdóttir vék af fundi kl. 19:00. Vísað er til minnisblaðs frá 4.02.2013 um viðhorfskönnun vegna samræmingar skóladagatals leik- og grunnskóla.Áheyrnafulltrúi kennara leggur til að spurningarnar verði tvær og kanni með þeim hætti dagvistunarþörf foreldra nánar á skipulagsdögum í leik- og grunnskólum í Kópavogi. Tillaga borin undir atkvæði. Meðmæltir voru tveir og andvígir voru þrír. Formaður skólanefndar leggur til að unnið verði í samræmi við minnisblað. Meðmæltir voru fimm.
24
Skólanefnd - 53. fundur
Fulltrúi kennara spurðist fyrir um viðhorfskönnun meðal foreldra um málefnið.
Máli frestað til næsta fundar.
25
Leikskólanefnd - 28. fundur
Lagt fram. Leikskólanefnd lítur á það fyrirkomulag sem ákveðið var varðandi samræmingu skipulagsdaga eftir stærri hverfum en áður, sem tilraun sem endurskoða þarf fyrir skólaárið 2013-2014.
26
Skólanefnd - 43. fundur
Bréf frá skólastjórum leik- og grunnskóla.
Bréf lagt fram. Skólanefnd óskar eftir að gerð verði viðhorfskönnun meðal foreldra um samræmt skóladagatal leik- og grunnskóla. Könnunin fari fram haustið 2012 og felur nefndin starfsmönnum menntasviðs að undirbúa það verkefni.
27
Leikskólanefnd - 25. fundur
Lagt fram. Nefndin fagnar þeim árangri sem náðst hefur við samræmingu skipulagsdaga leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2012-2013.
28
Skólanefnd - 38. fundur
Tillaga um vetrarfrí, skólabyrjun og skipulagsdaga fyrir skólaárið 2012 -2013 lögð fram.
29
Bæjarráð - 2613. fundur
Frá deildarstjóra grunnskóladeildar, lögð fram ályktun frá KBK um samræmda starfsdaga leik- og grunnskóla, ásamt bókun skólanefndar frá 17/10 þar sem erindi KBK er vísað til bæjarráðs.
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Lýsi undrun minni á ótrúlegri bókun Kennarabandalags Kópavogs sem sýnir algjört áhugaleysi á að taka tillit til foreldra í Kópavogi.
Ómar Stefánsson"
Hlé var gert á fundi kl. 8:38. Fundi var fram haldið kl. 8:42.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson"
Bæjarráð felur sviðsstjóra menntasviðs að ræða við forsvarsmenn Kennarabandalags Kópavogs, félags leikskólakennara í Kópavogi og skólastjórnendur í bænum í samræmi við fyrri tilmæli bæjarráðs vegna málsins.
Hafsteinn Karlsson vék af fundi undir þessum lið.
30
Skólanefnd - 34. fundur
Lögð fram ályktun frá KBK um samræmda starfsdaga.
Erindi KBK lagt fram og vísað til bæjarráðs.