Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 54. fundur

í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sesselja Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
  • Gunnlaugur Snær Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Marteinn Sverrisson - aðalfulltrúi
  • Signý Þórðardóttir - aðalfulltrúi
  • Helga María Hallgrímsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlaug Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Egill Óskarsson - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Sesselja Hauksdóttir

Dagskrá fundar

01

Daggæsla. Endurnýjun á leyfi

Leikskólanefnd samþykkir endurnýjunina með fyrirvara um að verði sent inn nýtt læknisvottorð og nýja úttekt heilbrigðiseftirlits. Starfsleyfi verði ekki gefið út fyrr en fyrrgreindum atriðum verði fullnægt.

02

Umsókn um leyfi til daggæslu barna

Leikskólanefnd samþykkir leyfið með fyrirvara um starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits.

03

Skóladagatal - Samræming skipulagsdaga leik- og grunnskóla.

Formaður kynnti bréf leikskólastjóra. Hann lagði líka fram tillögu um fyrirkomulag skipulagsdaga. Menntasviði falið að leggja fram tillögur um hvernig best er að meta reynslu af fyrirkomulagi skipulagsdaga. Leikskólanefnd samþykkir tillöguna og að leikskólar skili skóladagatali þar sem fram koma lokunardagar fyrir 15. apríl.$line$Gunnlaugur Ólafsson og Jóhanna Heiðdal leggja fram eftirfarandi bókun: "Kjarni deilunnar um skipulagsdaga er fjöldi lokunardaga. Haft skal að leiðarljósi að skipulagsdagar leikskóla samræmist lokunardögum grunnskóla".

04

Leikskóladeild-Tölulegar upplýsingar um leikskóla 2014.

Kynntar og ræddar.

05

Leikskóladeild-aukin pósenta í afleysingu á leikskólum.

Leikskólanefnd vísar bréfinu til vinnslu næstu fjárhagsáætlunar og umfjöllunar Menntasviðs. Leikskólanefnd sýnir skilning þeim vanda sem felst í miklum veikindum starfsmanna í leikskólum.

06

Leikskóladeild-Ósk um að vinna að rannsókn um heilsustefnu.

Leikskólanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti og óskar eftir að fá að kynna sér niðurstöður.