Leikskólanefnd - 69. fundur
Leikskólinn Baugur
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
- Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
- Gunnlaugur Snær Ólafsson - aðalfulltrúi
- Signý Þórðardóttir - aðalfulltrúi
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurlaug Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi
- Magnús Helgi Björgvinsson - aðalfulltrúi
- Bergrún Ísleifsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Margrét Sigmundsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Sigurlaug Bjarnadóttir
Dagskrá fundar
01
Menntasvið-stefna um sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla. Stuðningur við nemendur m.sérþarfir.
Anna Karen Ásgeirsdóttir, sérkennslufulltrúi leikskólanna, kynnti drög að stefnu í sérfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum Kópavogs og stuðning við nemendur með sérþarfir. Drög voru lögð fyrir nefndina til umsagnar og ábendinga. Leikskólanefnd fagnar þeirri vinnu sem unnin hefur verið í samstarfi beggja skólastiga. Stefnan lýsir þeim vel þeim vinnubrögðum sem viðhöfð eru í stuðningi við börn í leik- og grunnskólum í Kópavogi.
Beiðni um frestun grunnskólagöngu samþykkt einróma.
Leikskólanefnd samþykkir beiðni um rannsókn fyrir sitt leyti með fyrirvara um samþykki leikskólastjóra þeirra leikskóla sem rannsóknin á að fara fram í.
Námskrá leikskólans Undralands lögð fram. Leikskólanefnd fagnar námskránni.
Máli frestað frá síðasta fundi. Lagt fram til umræðu.