Menntasvið-skólaþjónusta
Málsnúmer: 1604020
Ferill máls
01
Menntaráð - 30. fundur
Kynning á forvörnum og viðbrögðum vegna kvíða og depurðar nemenda, á vegum skólaþjónustu grunnskóla.
Máli frestað til næsta fundar.
02
Menntaráð - 24. fundur
Svar við fyrirspurn Helgu Maríu Hallgrímsdóttur, fulltrúa Framsóknarflokks um úrræði í Kópavogsbæ fyrir nemendur með alvarleg hegðunarfrávik
Svar lagt fram.
03
Menntaráð - 23. fundur
Fyrirspurn frá Helgu Maríu Hallgrímsdóttur, fulltrúa Framsóknarflokks lögð fram.
Fyrirspurn lögð fram og vísað til umsagnar menntasviðs.
04
Bæjarstjórn - 1142. fundur
Frá skólanefnd, dags. 20. september, lögð fram til samþykktar stefna um skólaþjónustu í leik- og grunnskólum Kópavogs og stuðning við nemendur með sérþarfir sem skólanefnd samþykkti á fundi þann 19. september sl. Leikskólanefnd samþykkti stefnuna fyrir sitt leyti á fundi þann 15. september sl. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða stefnu um skólaþjónustu í leik- og grunnskólum Kópavogs og stuðning við nemendur með sérþarfir með 11 atkvæðum.
05
Bæjarráð - 2838. fundur
Frá skólanefnd, dags. 20. september, lögð fram til samþykktar stefna um skólaþjónustu í leik- og grunnskólum Kópavogs og stuðning við nemendur með sérþarfir sem skólanefnd samþykkti á fundi þann 19. september sl. Leikskólanefnd samþykkti stefnuna fyrir sitt leyti á fundi þann 15. september sl.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
06
Skólanefnd - 107. fundur
Drög að stefnu lögð fram til afgreiðslu.
Skólnefnd samþykkkir stefnu um Skóla fyrir alla.
07
Leikskólanefnd - 73. fundur
Leikskólanefnd samþykkir fyrir sitt leiti stefnuna Skóli fyrir alla - skólaþjónusta og stuðningur við börn í leik- og grunnskólum Kópavogs.
08
Skólanefnd - 103. fundur
Drög að stefnu til umræðu.
Skólnefnd ræddi drög.
09
Leikskólanefnd - 69. fundur
Anna Karen Ásgeirsdóttir, sérkennslufulltrúi leikskólanna, kynnti drög að stefnu í sérfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum Kópavogs og stuðning við nemendur með sérþarfir. Drög voru lögð fyrir nefndina til umsagnar og ábendinga. Leikskólanefnd fagnar þeirri vinnu sem unnin hefur verið í samstarfi beggja skólastiga. Stefnan lýsir þeim vel þeim vinnubrögðum sem viðhöfð eru í stuðningi við börn í leik- og grunnskólum í Kópavogi.
10
Skólanefnd - 101. fundur
Drög að stefnu kynnt og lögð fram til umsagnar.
Ragnheiður Hermannsdóttir kynnti vinnu við stefnumótun og drög lögð fram til skólanefndarmanna til umsagnar.