Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 57. fundur

í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Gunnlaugur Snær Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Marteinn Sverrisson - aðalfulltrúi
  • Signý Þórðardóttir - aðalfulltrúi
  • Helga María Hallgrímsdóttir - aðalfulltrúi
  • Rakel Ýr Isaksen - áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurlaug Bjarnadóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Egill Örn Gunnarsson

Ritari

  • Sigurlaug Bjarnadóttir

Dagskrá fundar

01

Leikskóladeild-Viðhorfskönnun Daggæslu 2015

Daggæslufulltrúi kynnti niðurstöður viðhorfskönnunar. Nefndin fagnar góðum niðurstöðum.

02

Leyfi og endurnýjun leyfis

Leikskólanefnd samþykkir umsóknina

03

Leyfi og endurnýjun leyfis

Leikskólanefnd samþykkir umsóknina

04

Leikskóladeild-Umsóknir og úthutun úr þróunarsjóði leikskóla 2015.

Leikskólanefnd samþykkir tillögur leikskólafulltrúa um úthlutun úr þróunarsjóði til leikskólanna Marbakka, Arnarsmára, Kópasteins og Rjúpnahæðar sbr.fyrirliggjandi tillögu.

05

Skóladagatal - Samræming skipulagsdaga leik- og grunnskóla.

Tillaga var samþykkt með 4 atkvæðum. Eiríkur Ólafsson, Gunnlaugur Snær Ólafsson, Egill Örn Gunnarsson og Marteinn Sverrisson samþykktu, en á móti var Signý Þórðardóttir.$line$" Fulltrúar leikskólastjóra og starfsmanna mótmæla að sameiginlegur skipulagsdagur leikskóla verði 24.ágúst 2015. Ágústmánuður er viðkvæmur mánuður þar sem aðlögun nýrra barna fer fram, ekki er hægt að ganga út frá að allt starfsfólk hafi lokið sumarleyfum, einnig óvíst hvort búið sé að fullmanna skólana á þeim tíma. Tillaga að skipulagsdögum fyrir skólaárið 2015-2016 var sett fram á sameiginlegum fundi leik- og grunnskólastjóra út frá faglegum forsendum og óska leikskólastjórar eftir að stuðst verði við þá tillögu´´.$line$´´Helga María Hallgrímsdóttir og Signý Þórðardóttir harma ákvörðun nefndarinnar og telja fagleg rök fyrir því að leikskólastjórar tímasetji 5.daginn sjálfir. Sér í lagi í ljósi þess að skipulagsdögum hefur verið fækkað úr 6 í 5´´.

06

Breyting á fyrirkomulagi skipulagsdaga

Frestað og starfsmönnum Menntasviðs falið að afla frekari upplýsinga.

07

Leikskóladeild-skipulagsdagar leikskóla

Samþykkt

08

Daggæsla-athugasemdir

Fært í trúnaðarbók.

Önnur mál:
Helga María Hallgrímsdóttir leggur til að umræða um gjaldskrá leikskóla verði tekin til umræðu á næsta leikskólanefndarfundi.
Gunnlaugur Ólafsson leggur til að öryggismál leikskóla verði rædd á næsta fundi.