Leikskólanefnd - 91. fundur
á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
- Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
- Gunnlaugur Snær Ólafsson - aðalfulltrúi
- Magnús Helgi Björgvinsson - aðalfulltrúi
- Helgi Hrafn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Bergrún Ísleifsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - foreldrafulltrúi
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Sigurlaug Bjarnadóttir
Dagskrá fundar
Rekstrarstjóri menntasviðs kynnir samantekt á veikindadögum í leikskólum Kópavogs
Sindri Sveinsson, rekstrarstjóri menntasviðs, kynnti niðurstöður veikindatíðni í leikskólum Kópavogs á árunum 2013-2017.
Lagt fram til kynningar
Leikskólanefnd samþykkir tillögu garðyrkjustjóra um ráðstöfun 40 m.kr. í framkvæmdir á leikskólalóðum á árinu 2018 í samræmi við skýrslu um skemmtilegar leikskólalóðir, með öllum greiddum atkvæðum.
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi í Kópavogi
Leikskólanefnd samþykkir leyfi til daggæslu barna í heimahúsi.
Lagt fram til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Rjúpnahæðar.
Beiðni um leyfi til rannsóknar forprófunar málþroskaprófs fyrir leikskólabörn á aldrinum 4-6 ára.
Leikskólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti leyfi til rannsóknar með þeim fyrirvara að leikskólastjórar og foreldrar samþykki framkvæmd rannsóknarinnar.
Beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi fyrir skólaárið 2018-2019
Leikskólanefnd samþykkir beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi skólaárið 2018-2019.
Beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi fyrir vorið 2018.
Leikskólanefnd samþykkir með þremur atkvæðum gegn tveimur tillögu um tilfærslu á skipulagsdegi 4. maí til 20. apríl með fyrirvara um samþykki foreldraráðs Aðalþings. Tillagan er samþykkt með þremur atkvæðum fulltrúa Bjartrar framtíðar, Eiríks Ólafssonar, fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Gunnlaugs Ólafssonar og fulltrúa Samfylkingar, Magnúsar Björgvinssonar gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Jóhönnu Heiðdal og fulltrúa Vinstri Grænna, Helga Hrafns Ólafssonar.
Leikskólanefnd áréttar jafnframt að í umsókn um tilfærslu skipulagsdaga þarf að liggja fyrir samþykki foreldraráðs og skýrt komi fram hvaða dag er óskað tilfærslu á.
Deildarstjóri leikskóladeildar kynnir uppfærslu á innritunarreglunum og forgangsbeiðnum í leikskóla.
Leikskólanefnd samþykkir nýtt form til umsóknar um forgang í leikskóla og endurskoðaðar reglur um innritun og dvöl barna í leikskólum með öllum greiddum atkvæðum.