Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skemmtilegri leikskólalóðir.

Málsnúmer: 1512173

Ferill máls

01

Leikskólanefnd - 138. fundur

Tillögur um framkvæmdir á leikskólalóðum fyrir árið 2022 lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir tillögu um forgangsröðun leikskólalóða til endurbóta árið 2022 fyrir sitt leyti og vísar tillögunni áfram til samþykktar bæjarráðs.

02

Bæjarráð - 3033. fundur

Tillögur um framkvæmdir á leikskólalóðum fyrir árið 2021. Lagt fram til samþykktar.

Bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum afgreiðslu leikskólanefndar.

03

Leikskólanefnd - 125. fundur

Tillögur um framkvæmdir á leikskólalóðum fyrir árið 2021. Lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd þakkar garðyrkjustjóra, Friðriki Baldurssyni fyrir góða kynningu á stöðu og endurmat leikskólalóðanna fyrri árin 2017-2020.

Leikskólanefnd samþykkir tillögu um forgangsröðun leikskólalóða til endurbóta árið 2021 fyrir sitt leyti og vísar tillögunni áfram til samþykktar bæjarráðs.

04

Bæjarráð - 2992. fundur

Tillögur um framkvæmdir á leikskólalóðum fyrir árið 2020. Lagt fram til samþykktar.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu leikskólanefndar.

05

Bæjarráð - 2991. fundur

Tillögur um framkvæmdir á leikskólalóðum fyrir árið 2020. Lagt fram til samþykktar.

06

Leikskólanefnd - 116. fundur

Tillögur um framkvæmdir á leikskólalóðum fyrir árið 2020. Lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir tillögu um forgangsröðun leikskólalóða til endurbóta árið 2020 fyrir sitt leyti og vísar tillögunni áfram til samþykktar bæjarráðs.

07

Bæjarráð - 2944. fundur

Frá sviðsstjórum umhverfis- og menntasviðs, dags. 28. janúar, lagt fram erindi um framkvæmdir á leikskólalóðum árið 2019. Lagt er til að 40 m.kr. skv. fjárhagsáætlun verði ráðstafað með þeim hætti að lokið verði við framkvæmdir á lóð Arnarsmára og farið verði í endurbætur á lóð Álfatúns, auk þess sem undirbúningi að endurbótum á lóð Núps verði lokið.

Bæjarráð samþykkir framlagt erindi með fimm atkvæðum.

08

Leikskólanefnd - 103. fundur

Lagt fram til kynningar

Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri Kópavogs, kynnti skýrslu um leikskólalóðir og ákvarðanir um forgangsröðun verkefna í samræmi við hana. Leikskólanefnd þakkar fyrir greinargóða skýrslu.

09

Leikskólanefnd - 91. fundur

Lagt fram til kynningar

Leikskólanefnd samþykkir tillögu garðyrkjustjóra um ráðstöfun 40 m.kr. í framkvæmdir á leikskólalóðum á árinu 2018 í samræmi við skýrslu um skemmtilegar leikskólalóðir, með öllum greiddum atkvæðum.

10

Bæjarráð - 2864. fundur

Garðyrkjustjóri kynnir skýrslu um leikskólalóðir í Kópavogi og tillögur starfshóps um endurgerð þeirra. Jafnframt er lögð fram tillaga um skiptingu 30 mkr. fjárveitingar í endurnýjun leikskólalóða 2017.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu garðyrkjustjóra um forgangsröðun við endurnýjun leikskólalóða 2017 ásamt tillögu um ráðstöfun 30 m.kr. fjárveitingar í verkefnið.

11

Leikskólanefnd - 80. fundur

Garðyrkjustjóri kynnir skýrslu um leikskólalóðir í Kópavogi og tillögur starfshóps um endurgerð þeirra. Jafnframt er lögð fram tillaga um skiptingu 30 mkr. fjárveitingar í endurnýjun leikskólalóða 2017.

Garðyrkjustjóri kynnti skýrsluna skemmtilegar leikskólalóðir sem m.a. inniheldur tillögur starfshóps um endurgerð þeirra og forgangsröðun.

Leikskólanefnd samþykkir tillögu garðyrkjustjóra um forgangsröðun við endurgerð leikskólalóða og ráðstöfun 30 mkr. í verkefnið með öllum greiddum atkvæðum.

12

Bæjarráð - 2814. fundur

Frá deildarstjóra leikskóladeildar, dags. 21. mars, lögð fram bókun leikskólanefndar frá fundi leikskólanefndar, 17. mars.$line$"Leikskólanefnd mælir með við bæjarráð að fjárveiting í fjárhagsáætlun 2016 til endurgerðar leikskólalóða samkvæmt verkefninu "skemmtilegri skólalóðir", sem kynnt var á síðasta fundi leikskólanefndar, verði varið til leikskólalóða leikskólanna Dals og Grænatúns."

Bæjarráð samþykkir tillögu leikskólanefndar með fimm atkvæðum.

13

Leikskólanefnd - 68. fundur

Leikskólanefnd mælir með við bæjarráð að fjárveiting í fjárhagsáætlun 2016 til endurgerðar leikskólalóða samkvæmt verkefninu "skemmtilegri skólalóðir", sem kynnt var á síðasta fundi leikskólanefndar, verði varið til leikskólalóða leikskólanna Dals og Grænatúns.

14

Leikskólanefnd - 67. fundur

Friðrik Baldursson, garðyrkjustjóri, kynnti vinnu við verkefnið "skemmtilegri leikskóla- og skólalóðir"