Leikskólanefnd - 92. fundur
á Digranesvegi 1, fundarherbergi - Digranes
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
- Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
- Gunnlaugur Snær Ólafsson - aðalfulltrúi
- Magnús Helgi Björgvinsson - aðalfulltrúi
- Helgi Hrafn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Margrét Sigmundsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Bergrún Ísleifsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - foreldrafulltrúi
Starfsmenn
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar
- Stefán Ómar Jónsson - verkefnastjóri
Ritari
- Sigurlaug Bjarnadóttir
Leikskólanefnd þakkar leikskólastjóra Efstahjalla Hafdísi Hafsteinsdóttur fyrir áhugaverða kynningu á starfi leikskólans. Einnig þakkara nefndin fyrir góðar veitingar.
Dagskrá fundar
Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi í Kópavogi
Leikskólanefndin samþykkir endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi.
Beiðni um tilfærslu á skipulagsdegi fyrir leikskólaárið 2018-2019.
Leikskólanefnd samþykkir beiðnina um tilfærslu á skipulagsdegi.
Starfsáætlun leikskólans Lækjar lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Lækjar.
Starfsáætlun leikskólans Núpar lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun Núps.
Reglur Kopavogsbæjar um tilfærslu á skipulagsdegi lögð fram til kynningar
Lagt fram til umræðu. Visað til menntasviðs til frekari úrvinnslu.
Kynntar verða tölulegar upplýsingar um stöðu ráðningar í leikskólum og fjölda barna á biðlistum.
Lagt fram til kynningar.
Næringarstefna leikskóla Kópavogs lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir næringarstefnu leikskóla Kópavogs.