Leikskóladagatal fyrir skólaárið 2022-2023
Málsnúmer: 1602303
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 137. fundur
Tillaga að sameiginlegum skipulagsdögum fyrir skólaárið 2022-2023 fyrir leikskóla Kópavogs.
Leikskólanefnd samþykkir leikskóladagatal fyrir skólaárið 2022-2023.
02
Leikskólanefnd - 124. fundur
Tillaga að sameiginlegum skipulagsdögum fyrir skólaárið 2021-2022 fyrir leikskóla Kópavogs
Tillaga að sameiginlegum skipulagsdögum fyrir skólaárið 2021-2022 samþykkt.
03
Leikskólanefnd - 117. fundur
Beiðni um frestun á auka skipulagsdegi sem 5 leikskólar hafa fengið leyfi fyrir, vegna námsferðar erlendis í vor.
Samþykkt var að veita leikskólunum Álfaheiði, Efstahjalla, Dal, Rjúpnahæð og Heilsuleikskólanum Kór leyfi til að fresta 6. skipulagsdeginum um óákveðin tíma vegna Covid 19. Einnig var ákveðið, að sömu ástæðu, að fresta skipulagsdeginum sem á að vera 23. mars n.k. um óákveðin tíma.
04
Leikskólanefnd - 115. fundur
Skipulagsdagar fyrir skólaárið 2020-2021 lagt fram til samþykktar
Leikskólanefnd samþykkir tillöguna að skipulagsdögum fyrir skólaárið 2020-2021, enda er tillagan í samræmi við reglur um skipulagsdaga og skóladagatöl leikskóla.
05
Leikskólanefnd - 106. fundur
Lögð fram viðmið um leikskóladagatöl og dagsetningar af samræmdum skipulagsdögum leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2019-2020.
Leikskólanefnd samþykkir með öllum greiddum atkvæðum tillögu nefndarinnar um reglur um skipulagsdaga og skóladagatöl leikskóla. Leikskólanefnd hvetur leikskólastjóra til að kynna vel fyrir foreldrum tilgang og verkefni sem unnin eru á skipulagsdögum.
06
Leikskólanefnd - 105. fundur
Lögð fram viðmið um leikskóladagatöl og dagsetningar af samræmdum skipulagsdögum leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2019-2020
Frestað til næsta fundar.
07
Leikskólanefnd - 94. fundur
Reglur Kópavogsbæjar um tilfærslu á skipulagsdegi leikskóla lögð fram til samþykktar.
Leikskólanefnd samþykkir reglur Kópavogsbæjar um tilfærslu á skipulagsdögum með samþykktum breytingum.
08
Leikskólanefnd - 92. fundur
Reglur Kopavogsbæjar um tilfærslu á skipulagsdegi lögð fram til kynningar
Lagt fram til umræðu. Visað til menntasviðs til frekari úrvinnslu.
09
Leikskólanefnd - 67. fundur
Málið rætt. Nefndarmenn greiddu atkvæði sérstaklega um fyrri hluta erindis, að leikskólar í Kópavogi fái 4 tíma til viðbótar við 5 skipulagsdaga, vegna sameiginlegs vinnudags leikskóla og grunnskóla í Kópavogi sem áætlaður er 11. nóvember 2016, í tengslum við stefnumótun um læsi og lesskilning. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.$line$Seinni hluta erindis varðandi auka skipulagsdag hafnað með atkvæðagreiðslu; Signý Þórðardóttir greiddi atkvæði með erindinu, Eiríkur Ólafsson, Jóhanna Heiðdal og Gunnlaugur Ólafsson greiddu atkvæði gegn tillögunni, Magnús Björgvinsson sat hjá.$line$$line$Bókun: "Mikilvægt er að koma til móts við fagleg sjónarmið við skipulagningu leikskólastarfs með því að veita aukinn tíma til þess." Signý Þórðardóttir og Helga María Hallgrímsdóttir$line$Bókun: "Taka verður tillit til faglegra sjónarmiða, en einnig þarf að hafa í huga þarfir foreldra leikskólabarna. Stefna ber að því að foreldrar fái að hafa áhrif á framtíðarskipan skipulagsdaga hvort um sé að ræða 5 eða 6 daga á ári með virku íbúalýðræði." Eiríkur Ólafsson, Jóhanna Heiðdal og Gunnlaugur Snær Ólafsson