Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 72. fundur

í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Bergrún Ísleifsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Margrét S Sigbjörnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Magnús Helgi Björgvinsson - aðalfulltrúi
  • Gunnlaugur Snær Ólafsson - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Sigurlaug Bjarnadóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Íbúalýðræði þátttökufjárlagagerð

Sólveig H. Jóhannsdóttir verkefnastjóri kynnir lýðræðisverkefnið Okkar Kópavogur.

Sólveig Jóhannsdóttir, verkefnastjóri á umhverfissviði kom á fundinn og kynnti verkefnið.

Almenn mál

02

Framkvæmdaáætlun Kópavogsbæjar í jafnréttis- og mannréttindamálum 2015-2018

Bæjarráð vísar málinu til umsagnar nefnda og ráða Kópavogsbæjar

Leikskólanefnd fagnar drögum að framkvæmdaráætlun og mun senda deildarstjóra leikskóladeildar ábendingar ef þurfa þykir.

Almenn mál

03

Undanþága um skilyrði lögheimilis v.leikskóladvalar

Beiðni um að Kópavogur greiði fyrir leikskóladvöl utan sveitarfélags.

Samkomulag milli bæjarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kveður á um að börn sem flytja á milli sveitarfélaga sé heimilt að dvelja áfram í leikskóla í því bæjarfélagi sem flutt er úr í allt að tólf mánuði frá flutningi lögheimilis.

Erindinu er hafnað á gundvelli ofangreinds samkomulags.

Almenn mál

04

Leikskóladeild-stöðugildi í eldhús

Leikskólastjórar í Kópavogi óska eftir að í fjárhagsáæltun fyrir árið 2017 verði aukning stöðugilda og matarkvóta í eldhúsum leikskólanna.

Nefndin sýnir málinu skilning en ákvarðanir af fjárhagslegum toga eru samkvæmt erindisbréfi leikskólanefndar ekki á forræði nefndarinnar. Nefndin vísar því erindinu til bæjarráðs til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.

Almenn mál

05

Ósk um breytingar á skipulagsdögum v. námsferðar 2016-2017.

Sigalda ehf. óskar eftir tilfærslu á skipulagsdögum vegna námsferðar næsta vor.

Erindinu er frestað til næsta fundar. Nefndin óskar eftir nánari upplýsingum um fyrirhugaða námsferð

Almenn mál

06

Leikskóla- og grunnskóladeild, rannsókn v.móttöku og náms flóttabarna á Íslandi.

Hanna Ragnarsdóttir prófessor í fjölmenningarfræðum Menntavísindasviðs HÍ óskar eftir leyfi til að hefja rannsókn á móttöku og námi flóttabarna í Íslandi.

Leikskólanefnd samþykkir beiðnina fyrir sitt leiti með fyrirvara um samþykki leikskólastjóra.

Almenn mál

07

Starfsáætlanir Dalur

Starfsáætlun leikskólans Dals fyrir leikskólaárið 2016-2017 lögð fyrir

Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlunina

Almenn mál

08

Starfsáætlanir Fagrabrekka

Starfsáætlun leikskólans Fögrubrekku fyrir leikskólaárið 2016 - 2017 lögð fyrir

Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlunina

Almenn mál

09

Starfsáætlanir Arnarsmári

Starfsáætlun leikskólans Arnarsmára fyrir leikskólaárið 2016 -2017 lögð fyrir

Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlunina

Almenn mál

10

Starfsáætlanir Kópasteinn

Starfsfáætlun leikskólans Kópasteins fyrir leikskólaárið 2016 - 2017 lögð fyrir

Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlunina

Almenn mál

11

Starfsáætlanir Fífusalir

Starfsáætlun Heilsuleikskólans Fífusala fyrir leikskólaárið 2016 - 2017 lögð fyrir

Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlunina

Almenn mál

12

Starfsáætlanir Austurkór

Starfsáætlun leikskólans Austurkórs fyrir leikskólaárið 2016 - 2017 lögð fyrir

Frestað til næsta fundar