Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 27. fundur

í bæjarstjórnarsal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sesselja Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
  • Arnþór Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Aðalsteinn Jónsson - aðalfulltrúi
  • Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Signý Þórðardóttir - varamaður
  • Áslaug Pálsdóttir - vara foreldrafulltrúi
  • Unnur Tryggvadóttir Flóvenz

Ritari

  • Sesselja Hauksdóttir

Dagskrá fundar

01

Kynning á leikskólamálum

Leikskólafulltrúi kynnti málefni er varða leikskóla í Kópavogi. Leikskólanefnd þakkar góða kynningu.

02

Starfsemi gæsluleikvalla

Leikskólanefnd mælir með tillögum menntasviðs til bæjarráðs. Nefndin mælir með að foreldrar og dagforeldrar hafi aðgengi að leiksvæðum og húsnæði núverandi gæsluvalla.

03

Erindi kennara vegna samræmingar starfsdaga grunn- og leikskóla í Kópavogi

Meirihluti leikskólanefndar felur leikskólastjórum í samstarfi við skólastjóra grunnskóla að vinna að samræmingu skipulagsdaga í leik og grunnskólum fyrir skólaárið 2012-2013. Nauðsynlegt er að tveir eða fleiri grunnskólar starfi saman að samræmingu skipulagsdaga þar sem leikskólar tengjast fleiri en einu skólahverfi. Málið verði tekið upp að nýju fyrir skólaárið 2013-2014.

04

Ályktun frá FSL

Lögð fram til kynningar.

05

Afstúkun á leiksvæði við leikskólann Dal af öryggisástæðum

Leikskólanefnd mælir með erindinu.

06

Beiðni um leyfi til að kanna málþroska CODA barna í leik- og grunnskólum Kópavogs

Leikskólanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

07

Ósk um leyfi til rannsóknar í leikskólum

Leikskólanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti

08

Fundir leikskólastjóra 2011 - 2012

Lögð fram fundargerð 5. fundargerðar. Arnþór Sigurðsson tekur undir bókun í 3. lið.

09

Umsókn um leyfi til daggæslu barna

Leikskólanefnd samþykkir framlengingu á starfsleyfi

Önnur mál:

a: mnr: 1203005 Vinnureglur vegna greiðslu leikskólagjalda fyrir börn námsmanna í Kópavogi.
Kynnt tillaga að breytingu.