Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Erindi kennara vegna samræmingar starfsdaga grunn- og leikskóla í Kópavogi

Málsnúmer: 1202123

Ferill máls

01

Leikskólanefnd - 38. fundur

Lögð fram samþykkt frá 2. maí.

02

Leikskólanefnd - 27. fundur

Meirihluti leikskólanefndar felur leikskólastjórum í samstarfi við skólastjóra grunnskóla að vinna að samræmingu skipulagsdaga í leik og grunnskólum fyrir skólaárið 2012-2013. Nauðsynlegt er að tveir eða fleiri grunnskólar starfi saman að samræmingu skipulagsdaga þar sem leikskólar tengjast fleiri en einu skólahverfi. Málið verði tekið upp að nýju fyrir skólaárið 2013-2014.

03

Skólanefnd - 41. fundur

Bæjarráð vísar erindinu til skólanefndar til afgreiðslu.

Skólanefnd felur skólastjórum grunnskólanna í samstarfi við leikskólastjóra að vinna að samræmingu skipulagsdaga í leik- og grunnskólum fyrir skólaárið 2012 - 2013. Nauðsynlegt er að tveir eða fleiri grunnskólar starfi saman að samræmingu skipulagsdaga þar sem leikskólar tengjast fleiri en einu skólahverfi. Skólanefnd gefur grunnskólunum frest til að skila skóladagatali til 7. maí 2012.

04

Skólanefnd - 39. fundur

Bæjarráð vísaði erindinu til skólanefndar til afgreiðslu.

Skólanefnd óskar eftir samráði við leikskólanefnd um hugsanlega endurskoðun á ákvörðun um samræmingu skipulagsdaga í leik- og grunnskólum. Deildarstjóra grunnskóladeildar falið að svara erindum kennara.

05

Bæjarráð - 2630. fundur

Lagt fram að nýju erindi kennara vegna samræmingar starfsdaga grunn- og leikskóla, sem frestað var á fundi bæjarráðs 9/2.

Bæjarráð vísar erindinu til skólanefndar til afgreiðslu.

06

Bæjarráð - 2629. fundur

Erindi kennara við Snælandsskóla, dags. 30. janúar 2012, þar sem óskað er endurskoðunar á ákvörðun bæjarráðs á samræmdum skipulagsdögum í grunn- og leikskólum.

Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins til næsta fundar.