Leikskólanefnd - 31. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sesselja Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Arnþór Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Friðrik Friðriksson - áheyrnarfulltrúi
- Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
- Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður fræðslusviðs
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Aðalsteinn Jónsson - aðalfulltrúi
- Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - aðalfulltrúi
- Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
- Rakel Ýr Isaksen - áheyrnarfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir - áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Sesselja Hauksdóttir
Dagskrá fundar
Emilía Júlíusdóttir, daggæslufulltrúi sat fundinn undir þessum lið. Anna Birna Snæbjörnsdóttir og Emilía Júlíusdóttir, kynnti nýjar reglur sem gilda um dagforeldra. Sigurður Grétarsson og Arnþór Sigurðsson lýsa yfir óánægju með að hækkun framlags vegna dvalar hjá dagforeldrum hafi ekki verið eins mikil og lagt var upp með þegar þessi fjárhagsliður var hækkaður í fjárhagsáætlun. Sigurður Grétarsson lýsir ennfremur yfir óánægju yfir að foreldrum sé mismunað eftir því hvort þeir ákveði að taka allt fæðingarorlofið í byrjun eða nýta sér þann sveigjanleika sem lög um fæðingarorlof gefa. Arnþór óskar eftir upplýsingum um þróun á fjölgun dagforeldra og þróun á fjölda barna sem dvelja hjá þeim.
Leikskólanefnd samþykkir leyfið með fyrirvara um undirritun þjónustusamnings.
Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlanir eftirfarandi leikskóla: Rjúpnahæð, Grænatún, Álfatún, Kópahvoll, Marbakki, Urðarhóll, Kór, Baugur. Leikskólanefnd lýsir yfir ánægju með hvað starfsáætlunirnar eru vel unnar og lýsa fjölbreyttu og góðu starfi.
Leikskólanefnd telur verkefnið áhugavert, en frestar afgreiðslu. Leikskólanefnd óskar eftir því að við gerð næstu fjárhagsáætlunar verði gert ráð fyrir framlagi til að styrkja almennt þróunarverkefni í leikskólum Kópavogs. Slíkt væri mikil lyftistöng fyrir leikskólastarfið. Framlag í þróunarsjóð var tekið út í sparnaðarskyni. Leikskólanefnd telur að heppilegra sé styrkir til þróunarverkefna fari í gegnum þróunarsjóð, en að styrkja einstök verkefni með breytingu á launum.
Fundargerð 1. fundar leikskólastjóra 2012-2013 lögð fram og rædd. Arnþór Sigurðsson óskar eftir að leikskólastjórar fjalli aftur um tillögu um breytta gjaldskrá þar sem niðurstaða þeirra var byggð á röngum upplýsingum um stefnu Kennarasambandsins.
Umfjöllun og afgreiðslu frestað til næsta fundar.
<SPAN style="FONT-FAMILY: " lang=DA DA? mso-ansi-language: 11pt; FONT-SIZE: #1f497d; COLOR: Calibri?,?sans-serif?;>Lögð fram samþykkt stjórnar Samleiks. 
<SPAN style="FONT-FAMILY: " lang=DA DA? mso-ansi-language: 11pt; FONT-SIZE: #1f497d; COLOR: Calibri?,?sans-serif?;>"Stjórn SAMLEIK hafnar tillögu Arnþór Sigurðssonar um að leikskólapláss sé gjaldfrítt sex fyrstu tíma dagsins. Í röksemdum með tillögunni
<SPAN style="FONT-FAMILY: " lang=DA DA? mso-ansi-language: 11pt; FONT-SIZE: #1f497d; COLOR: Calibri?,?sans-serif?;>er lagt til að þetta verði tilraunaverkefni. Reynsla foreldra af tilaunaverkefnum í skólastarfi er ekki góð og engin ástæða til að ætla að hér verði undantekning á. Meðaldvalartími barna á leikskólum Kópavogs er 8 klst á dag. SAMLEIK tekur undir að ef að samfélagið væri í fullkomnu jafnvægi, þá væri sjálfgefið að foreldrum dygði 6 tímar til tekjuöflunar fyrir heimilið, en ekki að nýta sér þessa 8 klst. eins og raunin er í dag. Hér væri því verið að mismuna foreldrum út frá aldri barnanna og aðstæðum foreldra á vinnumarkaði".
<SPAN style="FONT-FAMILY: " lang=DA DA? mso-ansi-language: 11pt; FONT-SIZE: #1f497d; COLOR: Calibri?,?sans-serif?;><?xml:namespace prefix = u5 /><u5:p></u5:p><?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p>Arnþór Sigurðsson óskar eftir að bókað verði: "Undirritaður skorar á stjórn Samleiks að gera víðtæka könnun á tillögu minni um breytta gjaldskrá í leikskólunum í stað þess að stjórn taki svo afdráttarlausa afstöðu til máls sem snertir þúsundir foreldra leikskólabarna í Kópavogi án samráðs". </o:p>
Tillagan lýtur að breytingu á starfsemi yfir sumartímann. Flutningsmaður, Sigurður Grétarsson bókar: "Undirritaður leggur áherslu á að aukinn sveigjanleiki ríki hvað varðar sumarleyfi. Haft sé meira samráð við foreldra. Meðan ekki sé meiri sveigjanleiki en nú er geti foreldrar tekið lengra frí fyrir barn sitt án þess að greiða gjald".