Fundir leikskólastjóra 2012-2013
Málsnúmer: 1208797
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 39. fundur
Fundargerð 6. fundar leikskólastjóra lögð fram ásamt tillögum leikskólastjóra um forgangsröðun vegna fjárhagsáætlunar 2014. Arnþór Sigurðsson leggur fram bókun: "Tek undir óskir leikskólastjóra um að auknu fjármagni sé veitt til leikskólanna í batnandi árferði". Einnig lögð fram fundargerð 7. fundar.
02
Leikskólanefnd - 36. fundur
Fundargerð lögð fram til umræðu.
03
Leikskólanefnd - 35. fundur
Lögð fram 4 fundargerð leikskólastjóra vegna 2012-2013. Í fundargerðini er ályktun þar sem leikskólastjórar óska eftir að fyrirkomulag skipulagsdaga verði með fyrra horfi. Á fundi leikskólanefndar 29. mars 2012 var eftirfarandi bókað: "Meirihluti leikskólanefndar felur leikskólastjórum í samstarfi við skólastjóra grunnskóla að vinna að samræmingu skipulagsdaga í leik- og grunnskólum fyrir skólaárið 2012-2013. Nauðsynlegt er að tveir eða fleiri grunnskólar starfi saman að samræmingu skipulagsdaga þar sem leikskólar tengjast fleiri en einu skólahverfi." Leikskólanefnd samþykkir fyrri bókun vegna skólaársins 2013-2014.
04
Leikskólanefnd - 33. fundur
Lagðar fram fundargerðir 2 og 3 fundar leikskólastjóra skólaárið 2012-2013. Rætt um sumarlokanir. Leikskólanefnd mælir með að sumarlokanir verði með sama hætti 2014 og þegar hefur verið samþykkt fyrir 2013. Mikilvægt er fyrir foreldra og skipulagningu starfs í leikskólunum að hafa góðan fyrirvara.
05
Leikskólanefnd - 31. fundur
Fundargerð 1. fundar leikskólastjóra 2012-2013 lögð fram og rædd. Arnþór Sigurðsson óskar eftir að leikskólastjórar fjalli aftur um tillögu um breytta gjaldskrá þar sem niðurstaða þeirra var byggð á röngum upplýsingum um stefnu Kennarasambandsins.