Leikskólanefnd - 41. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sesselja Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Arnþór Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
- Aðalsteinn Jónsson - formaður
- Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - aðalfulltrúi
- Eiríkur Ólafsson - aðalfulltrúi
- Rakel Ýr Isaksen - áheyrnarfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
Ritari
- Sesselja Hauksdóttir
Dagskrá fundar
Pálmi Þór Másson, settur bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið. Pálmi fór yfir stjórnsýslulög hvað varðar systkinaforgang. Einnig fór Pálmi yfir álit lögfræðings Reykjavíkurborgar. Einnig var farið yfir álit Tryggva Þórhallssonar lögfræðings hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga. Pálmi taldi að skilyrtar innritunarreglur Kópavogsbæjar standist ákvæði stjórnsýslulaga. Það er samdóma álit þessara lögfræðinga að skilyrðislaus forgangur systkina myndi brjóta í bága við jafnræðisreglu stjórnsýslulaga.
Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlanir eftirtalinna leikskóla: Álfaheiði, Kópasteinn, Grænatún, Baugur, Núpur, Furugrund. Leikskólanefnd þakkar góðar áætlanir.
Leikskólanefnd samþykkir erindið.
Leikskólanefnd samþykkir erindið.
Ráðinn hefur verið leikskólastjóri í leikskólann Austurkór frá 1. janúar 2014. Guðný Anna Þóreyjardóttir, Miðgarði 5b. Egilsstöðum.
Fundargerð 2. fundar leikskólastjóra og starfsmanna leikskóladeildar, lögð fram.
B: Arnþór Sigurðsson leggur fram eftirfarandi ósk : "Af gefnu tilefni er óskað eftir kostnaðargreiningu á því að boðið sé upp á grænmetisfæði í leikskólum Kópavogsbæjar".