Til baka í fundargerðir
Systkinaforgangur í leikskóla
Málsnúmer: 1309503
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 41. fundur
Pálmi Þór Másson, settur bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið. Pálmi fór yfir stjórnsýslulög hvað varðar systkinaforgang. Einnig fór Pálmi yfir álit lögfræðings Reykjavíkurborgar. Einnig var farið yfir álit Tryggva Þórhallssonar lögfræðings hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga. Pálmi taldi að skilyrtar innritunarreglur Kópavogsbæjar standist ákvæði stjórnsýslulaga. Það er samdóma álit þessara lögfræðinga að skilyrðislaus forgangur systkina myndi brjóta í bága við jafnræðisreglu stjórnsýslulaga.