Leikskólanefnd - 23. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Sesselja Hauksdóttir - starfsmaður nefndar
- Arnþór Sigurðsson - formaður
- Sigurrós Þorgrímsdóttir - aðalfulltrúi
- Rakel Ýr Isaksen - áheyrnarfulltrúi
- Áslaug Pálsdóttir - vara áheyrnarfulltrúi
- Sigurður M Grétarsson - aðalfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir - áheyrnarfulltrúi
- María Munda Kristófersdóttir - vara áheyrnarfulltrúi
- Gunnlaugur Snær Ólafsson - varafulltrúi
Ritari
- Sesselja Hauksdóttir
Formaður óskaði eftir að máli yrði bætt á dagskrá. Var það samþykkt
Dagskrá fundar
Leikskólanefnd staðfestir námskrá Arnarsmára.
Minnihluti og fulltrúi foreldra og leikskólastjóra bóka: "Við hörmum það vinnulag að leikskólanefnd hafi ekki fengið fjárhagsáætlun bæjarins til umsagnar á milli umræðna. Slíkt stuðlar hvorki að gagnsæi, samráði né nýjum lausnum í málefnum bæjarins og bæjarbúa"
Leikskólanefnd staðfestir starfsáætlanir Sólhvarfa og Grænatúns.
Lagt fram til kynningar. Leikskólastjórum hefur verið sent bréf varðandi málið.
05
Ósk frá leikskólastjóra í Dal um að taka tvo skipulagsdaga saman í apríl 2012 vegna náms- og kynnisferðar starfsmanna.
Leikskólanefnd samþykkir erindið.
06
Öryggi barna hjá dagforeldrum. Framkvæmd reglugerðar um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005
Lagt fram til kynningar.
Leikskólanefnd samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti.
Leikskólanefnd samþykkir leyfið.
09
Samstarfssamningur milli RannUng og sveitarfélaga í kraganum um rannsóknarverkefni í kraganum
Leikskólanefnd mælir með að Kópavogsbær verði þátttakandi í þessari rannsókn. Gunnlaugur Snær Ólafsson bókar: "Það er ekki við hæfi að auka útgjöld til verkefna sem ekki teljast brýn nauðsyn, þegar sífellt er verið að skera niður í grunnþjónustu við bæjarbúa."
Fulltrúi leikskólastjóra kynnti erindið. Leikskólanefnd mælir með erindi leikskólastjóra, um að starfsmenn leikskóla fái svigrúm til að vinna að útfærslu og inneiðingu nýrra skólanámskráa skv. nýrri Aðalnámskrá fyrir leikskóla og lögum um leikskóla. Nefndi mælir með viðbótarskipulagstímum sem nemi samtals 8 stundum á skólaárinu 2012-2013. Leikskólanefnd hvetur til að samvinna sé höfð við foreldra um útfærslu.
Næsti fundur verði 10. janúar.