Erindi leikskólastjóra vegna vinnslu skólanámskrár
Málsnúmer: 1112032
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2630. fundur
Lagt fram að nýju erindi leikskólastjóra vegna vinnslu skólanámskrár, ásamt umsögn sviðsstjóra menntasviðs, sem frestað var á fundi bæjarráðs 9/2.
Bæjarráð samþykkir erindi leikskólastjóra. Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:<EM>"Undirritaður fagnar því að samkomulagi hefur verið náð um þetta mál.</EM><EM>Hjálmar Hjálmarsson"</EM>
02
Bæjarráð - 2629. fundur
Svar sviðsstjóra menntasviðs við fyrirspurn um kostnað vegna yfirvinnu í leikskólum. Kostnaður við fjögurra stunda yfirvinnu starfsmanna leikskóla Kópavogs er áætlaður u.þ.b. kr. 8,3 milljónir.
Hafsteinn Karlsson, Hjálmar Hjálmarsson og Guðný Dóra Gestsdóttir lögðu til að upphaflegt erindi leikskólastjóra verði samþykkt. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu til að afgreiðslu yrði frestað og var það samþykkt.Hlé var gert á fundi kl. 8:41. Fundi var fram haldið kl. 8:43.
03
Bæjarráð - 2627. fundur
Bæjarstjórn vísar afgreiðslu málsins til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs með sex atkvæðum, en fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.
Bæjarráð óskar eftir umsögn menntasviðs á kostnaði við fjögurra tíma yfirvinnu leikskólakennara við gerð námskrár.
04
Bæjarstjórn - 1051. fundur
Bæjarstjórn vísar afgreiðslu málsins til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs með sex atkvæðum en fimm bæjarfulltrúar sátu hjá.
05
Bæjarráð - 2624. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 6/1, umsögn, sem óskað var eftir í bæjarráði 8/12 sl. um erindi leikskólastjóra vegna vinnslu og innleiðingar nýrrar námsskrár.
Hlé var gert á fundi kl. 9:04. Fundi var fram haldið kl. 9:16.Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:<EM>"<SPAN style="FONT-FAMILY: " Times New Roman?,?serif?; COLOR: black; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: Calibri; mso-fareast-theme-font: minor-latin; mso-ansi-language: mso-fareast-language: IS; mso-bidi-language: AR-SA?>Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að vinna við innleiðingu nýrrar námsskrár rúmist innan þeirra fimm starfsdaga sem leikskólarnir hafa til umráða á ári hverju. Þar af leiðandi erum við á móti þessum tillögum. Með þessu er enn verið að gera foreldrum erfiðara fyrir. Auk þess þýðir þetta lægri tekjur fyrir bæinn.</SPAN></EM><SPAN style="FONT-FAMILY: " Times New Roman?,?serif?; COLOR: black; FONT-SIZE: 12pt; mso-fareast-font-family: Calibri; mso-fareast-theme-font: minor-latin; mso-ansi-language: mso-fareast-language: IS; mso-bidi-language: AR-SA?><EM>Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson"</EM></SPAN>Bæjarráð hafnar erindi leikskólastjóra með fjórum atkvæðum en einn greiddi atkvæði með því.
06
Bæjarráð - 2620. fundur
Frá leikskólafulltrúa, dags. 7/12, vegna bókunar í leikskólanefnd 6/12 varðandi námsskrár.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til umsagnar með kostnaðargreiningu.
07
Leikskólanefnd - 23. fundur
Fulltrúi leikskólastjóra kynnti erindið. Leikskólanefnd mælir með erindi leikskólastjóra, um að starfsmenn leikskóla fái svigrúm til að vinna að útfærslu og inneiðingu nýrra skólanámskráa skv. nýrri Aðalnámskrá fyrir leikskóla og lögum um leikskóla. Nefndi mælir með viðbótarskipulagstímum sem nemi samtals 8 stundum á skólaárinu 2012-2013. Leikskólanefnd hvetur til að samvinna sé höfð við foreldra um útfærslu.