Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 172. fundur

á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Heiðdís Geirsdóttir - formaður
  • Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - aðalmaður
  • Sigrún Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Jóhanna Pálsdóttir - aðalmaður
  • Heiða Björk Þórbergsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Eva Sjöfn Helgadóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Ögmundur Þorgrímsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Sigríður Kristín Sigurðardóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - starfsmaður menntasviðs

Ritari

  • Sigrún Hulda Jónsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Starfsreglur um verklag við úthlutun viðbótarstöðugilda vegna stuðnings í leikskóla

Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri skólaþjónustu leikskóla, kynnir breytt verklag við úthlutun viðbótarstöðugilda vegna stuðnings í leikskólum Kópavogs.

Leikskólanefnd þakkar greinagóða kynningu á breyttu verklagi við úthlutun viðbótarstöðugilda vegna stuðnings í leikskólum Kópavogs.


Gestir:

Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir - mæting: Kl. 17:00 og vék af fundi kl.17:22

Almenn mál

02

Reglur um akstursþjónustu leik- og grunnskólabarna

Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri skólaþjónustu leikskóla kynnir breytingar á orðalagi reglna um akstursþjónustu leik- og grunnskólabarna.

Lögð fram tillaga að breytingu á orðalagi í reglum um akstursþjónustu fatlaðra barna í Kópavogi. Leikskólanefnd samþykkir breytingarnar.

Gestir

Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir - mæting:17:00 og vék af fundi kl 17:22

Almenn mál

03

Sprotasjóður - Lestur á milli skólastiga

Elín Guðrún Pálsdóttir, leikskólaráðgjafi og Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir, kennsluráðgjafi kynna þróunarverkefnið Lestur á milli skólastiga 2025 - 2026 sem hlaut styrk frá Sprotasjóði 2025.

Leikskólanefnd þakkar greinagóða kynningu á þróunarverkefninu Lestur á milli skólastiga og fagnar því að fylgjast með.


Gestir

Elín Guðrún Pálsdóttir og Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir - mæting kl 17:25 og víkja af fundi kl.17:50

Almenn mál

04

Skóladagatal og starfsáætlun leikskóla Kópavogs

Skóladagatöl leikskóla Kópavogs 2025 - 2026 lögð fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir skóladagatöl leikskóla Kópavogs í samræmi við reglur um skipulagsdaga og skóladagatöl leik- og grunnskóla, þar sem það á við.

Almenn mál

05

Vinnuteymi dagforeldra

Vinnuteymi dagforeldra leggur fram tillögur að bættu starfsumhverfi dagforeldra í Kópavogi.

Lagt fram til samþykktar.

Almenn mál

06

Leikskóladeild-gæsluvellir

Skýrsla gæsluvalla sumarið 2025 lögð fram til kynningar.

Lagt fram.

Almenn mál

07

Barnaskóli Kársness, upphaf skólastarfs

Upplýsingar um stöðu skólastarfs við upphaf fyrsta skólaárs Barnaskóla Kársness.

Leikskólanefnd fagnar því að nýr Barnaskóli Kársness sé tekinn til starfa.