Reglur um akstursþjónustu fatlaðra leik- og grunnskólabarna
Málsnúmer: 2508695
Ferill máls
01
Menntaráð - 149. fundur
Lagt fram til samþykktar eftir umfjöllun í Notendaráði í málefnum fatlaðs fólks.
Á fundi menntaráðs þann 2. september síðast liðinn var samþykki fyrir Reglum um akstursþjónustu fatlaðra barna á leik- og grunnskólastigi vísað til umfjöllunar í Notendaráði í málefnum fatlaðs fólks. Notendaráð fjallaði um Reglur um akstursþjónustu fatlaðra barna á leik- og grunnskólastigi þann 6. október og hefur engar athugasemdir við uppfærðar reglur. Þær eru lagðar fram til samþykktar á fundi menntaráðs 7. október. Menntaráð samþykkir "Reglur um akstursþjónustu leik- og grunnskólabarna".
02
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 22. fundur
Á fundi sínum þann 2. september s.l. vísaði menntaráð drögum að reglum um akstursþjónustu leik- og grunnskólabarna til umsagnar í Notendaráði í málefnum fatlaðs fólks.
Notendaráð þakkar kynningu á drögum að breytingum á reglum um akstursþjónustu leik- og grunnskólabarna í Kópavogi. Notendaráð hefur engar athugasemdir.
03
Bæjarráð - 3227. fundur
Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri skólaþjónustu leikskóla kynnir breytingar á orðalagi reglna um akstursþjónustu leik- og grunnskólabarna.
04
Leikskólanefnd - 172. fundur
Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri skólaþjónustu leikskóla kynnir breytingar á orðalagi reglna um akstursþjónustu leik- og grunnskólabarna.
Lögð fram tillaga að breytingu á orðalagi í reglum um akstursþjónustu fatlaðra barna í Kópavogi. Leikskólanefnd samþykkir breytingarnar.
Gestir
Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir - mæting:17:00 og vék af fundi kl 17:22
05
Menntaráð - 147. fundur
Tillaga að breytingum á reglum um akstursþjónustu fatlaðra barna að 16 ára aldri lögð fram.
Reglur um akstursþjónustu fatlaðra barna við leik- og grunnskóla. Menntaráð vísar reglum til umsagnar í Notendaráði í málefnum fatlaðs fólks.