Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 116. fundur

á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Bergþóra Þórhallsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - aðalmaður
  • Sverrir Kári Karlsson - formaður
  • Erla Dóra Magnúsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hildur María Friðriksdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hákon Helgi Leifsson - aðalmaður
  • Valéria Kretovicová - áheyrnarfulltrúi
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Karen Rúnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Bergrún Ísleifsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Áslaug Pálsdóttir Ragnheiðard. - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Sigurlaug Bjarnadóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Skemmtilegri leikskólalóðir.

Tillögur um framkvæmdir á leikskólalóðum fyrir árið 2020. Lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir tillögu um forgangsröðun leikskólalóða til endurbóta árið 2020 fyrir sitt leyti og vísar tillögunni áfram til samþykktar bæjarráðs.

Almenn mál

02

Aðalskoðun leikskólalóða 2019

Lagt fram til kynningar.

Friðrik Baldursson garðyrkjustjóri kynnti niðurstöður Aðalskoðunar leikskólalóða 2019. Leikskólanefnd þakkar fyrir góða kynningu.

Almenn mál

03

Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna

Stýrihópur innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur gert drög að aðgerðaráætlun fyrir innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi. Óskað er eftir umsögn leikskóladeildar.

Leikskólanefnd hefur tekið til umræðu innleiðingaráætlun Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og mun skila minnisblaði til verkefnisstjóra innleiðingar Barnasáttmála í samræmi við umræður og ábendingar sem fram komu á fundinum.

Almenn mál

04

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi.

Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi í Kópavogi lögð fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir leyfi til daggæslu barna í heimahúsi.

Almenn mál

05

Starfsáætlun leikskólans Furugrundar

Starfsáætlun leikskólans Furugrundar fyrir skólaárið 2019-2020 lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Furugrundar.

Almenn mál

06

Umsókn og endurnýjun á leyfi

Umsókn um endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi í Kópavogi lögð fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir endurnýjun á leyfi til daggæslu barna í heimahúsi.

Almenn mál

07

Beiðni um rannsóknarleyfi - Þýðing og forprófun spurningalistanna FOCUS og LANIS

Lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd vísar málinu til menntasviðs til úrvinnslu.

Almenn mál

08

Menntasvið-vinnuteymi leikskólastjórnenda um starfsumhverfi leikskóla

Lagt fram til kynningar.

Frestað til næsta fundar.

Almenn mál

09

Reglur um dvöl barna hjá dagforeldri

Tillaga að breytingu á reglum um dvöl barna hjá dagforreldri. Lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir breytingu á reglum um dvöl barna hjá dagforeldri fyrir sitt leyti og vísar málinu áfram til samþykktar bæjarráðs.