Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Leikskólanefnd - 159. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Matthías Páll Imsland - aðalmaður
  • Hannes Þ. Hafstein Þorvaldsson - aðalmaður
  • Jóhanna Pálsdóttir - aðalmaður
  • Sigrún Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Eva Sjöfn Helgadóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Bryndís Baldvinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigríður Kristín Sigurðardóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Heiða Björk Þórbergsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Arnar Þór Pétursson - vara áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Sigurlaug Bjarnadóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Sigurlaug Bjarnadóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna

Lögð fram til kynningar skýrsla innleiðingarteymis um Fléttuna - farsæld barna og stöðu innleiðingar nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í Kópavogi.

Innleiðingarteymi Kópavogs um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna kynntu skýrslu og stöðu innleiðingar. Leikskólanefnd þakkar fyrir góða kynningu og lýsir ánægju sinni með hversu vel innleiðing hefur gengið.

Gestir:

Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri skólaþjónustu leikskóla - mæting: 17:00

Sólveig Norðfjörð, verkefnastjóri farsældar - mæting: 17:00

Jóhanna Lilja Ólafsdóttir, verkefnastjóri á velferðarsviði - mæting: 17:00

Almenn mál

02

Menntasvið-Starfshópur um starfsumhverfi leikskóla

Lagt fram.

Leikskólanefnd þakkar greinargóðar upplýsingar um stöðuna á innleiðingu breytinga í leikskólamálum.

Almenn mál

03

Leikskóladeild-skóladagatal leikskóla fyrir árið 2024 - 2025.

Lagt fram til samþykktar.

leikskólanefnd samþykkir skóladagatal fyrir skólaárið 2024-2025 með öllum greiddum atkvæðum.

Almenn mál

04

Eftirlit með einkaleikskólum og þjónustureknum leikskólum

Ytra eftirlit með leikskólanum Aðalþingi lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir athugunarlista vegna eftirlits með einka- og þjónustureknum leikskólum í Kópavogi.

Almenn mál

05

Starfsáætlun leikskólans Efstihjalla 2023-2024.

Lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Efstahjalla fyrir skólaárið 2023-2024

Almenn mál

06

Starfsáætlun leikskólans Grænatúns fyrir skólaárið 2023-2024.

Lagt fram til samþykktar

Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Grænatúns fyrir skólaárið 2023-2024.

Almenn mál

07

Starfsáætlun leikskólans Rjúpnahæðar 2023-2024.

Lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir starfsáætlun leikskólans Rjúpnahæðar fyrir skólaárið 2023-2024.