Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna
Málsnúmer: 2102649
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 177. fundur
Sólveig Norðfjörð og Elísa Guðnadóttir fara yfir stöðu innleiðingar
farsældarlaga hjá Kópavogsbæ.
Leikskólanefnd þakkar greinagóða kynningu á stöðu innleiðingar farsældarlaga hjá Kópavogsbæ.
Gestir víkja af fundi:
Sólveig Norðfjörð kl 18:00
Elísa Guðnadóttir kl 18:25
02
Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 10. fundur
Kynning á stöðu innleiðingar farsældar barna.
Lýðheilsu- og íþróttanefnd þakkar Sólveigu Norðfjörð, verkefnastjóra farsældar fyrir góða kynningu.
03
Bæjarráð - 3242. fundur
Kynning á stöðu innleiðingar farsældar barna.
Kynning og umræður.
04
Velferðar- og mannréttindaráð - 13. fundur
Lögð fram til kynningar skýrsla innleiðingarteymis farsældar í Kópavogi fyrir skólaárið 2024 - 2025.
Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir góða kynningu.
05
Menntaráð - 154. fundur
Lagt fram.
Sólveigu Norðfjörð og Jóhönnu Lilju Ólafsdóttur er þakkað fyrir góða kynningu.
SN og JLÓ víkja af fundi kl. 18:15.
06
Velferðarráð - 135. fundur
Lögð fram til kynningar skýrsla verkefnastjóra innleiðingar farsældar - skólaárið 2023 - 2024.
Velferðarráð þakkar fyrir góða kynningu.
07
Leikskólanefnd - 160. fundur
Ráðgjafi farsældar í leikskólum Kópavogs kynnir innleiðingu á samþættri þjónustu farsældar barna í leikskólum Kópavogs.
Leikskólanefnd þakkar kærlega fyrir greinagóða, upplýsandi og mjög góða kynningu á innleiðingu á samþættri þjónustu farsældar barna í leikskólum Kópavogs.
Gestir:
Elísa Guðnadóttir ráðgjafi farsældar barna - mæting kl. 17.00
Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir verkefnastjóri skólaþjónustu leikskóla - mæting kl. 17.00
08
Leikskólanefnd - 159. fundur
Lögð fram til kynningar skýrsla innleiðingarteymis um Fléttuna - farsæld barna og stöðu innleiðingar nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í Kópavogi.
Innleiðingarteymi Kópavogs um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna kynntu skýrslu og stöðu innleiðingar. Leikskólanefnd þakkar fyrir góða kynningu og lýsir ánægju sinni með hversu vel innleiðing hefur gengið.
Gestir:
Ásdís Emilía Gunnlaugsdóttir, verkefnastjóri skólaþjónustu leikskóla - mæting: 17:00
Sólveig Norðfjörð, verkefnastjóri farsældar - mæting: 17:00
Jóhanna Lilja Ólafsdóttir, verkefnastjóri á velferðarsviði - mæting: 17:00
09
Velferðarráð - 128. fundur
Lögð fram til kynningar skýrsla innleiðingarteymis um Fléttuna - farsæld barna og stöðu innleiðingar nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í Kópavogi.
Velferðarráð þakkar fyrir góða kynningu.
10
Menntaráð - 123. fundur
Lögð fram til kynningar skýrsla innleiðingarteymis um Fléttuna - farsæld barna og stöðu innleiðingar nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna í Kópavogi.
Innleiðingarteymi Kópavogs um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna kynntu skýrslu og stöðu innleiðingar. Menntaráð þakkar fyrir góða kynningu og lýsir ánægju sinni með hversu vel innleiðing hefur gengið.
11
Bæjarráð - 3092. fundur
Minnisblað sviðsstjóra velferðar- og menntasviðs dags. 22.6.2022, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lagt fram.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu menntaráðs með fimm atkvæðum.
12
Bæjarráð - 3092. fundur
Minnisblað sviðsstjóra velferðar- og menntasviðs dags. 22.6.2022, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lagt fram.
13
Bæjarráð - 3092. fundur
Minnisblað sviðsstjóra velferðar- og menntasviðs dags. 22.6.2022, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lagt fram til afgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu velferðarráðs með fimm atkvæðum.
14
Menntaráð - 98. fundur
Minnisblað sviðsstjóra velferðar- og menntasviðs dags. 22.6.2022, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lagt fram.
Menntaráð samþykkir fyrir sitt leiti að sviðstjórar mennta- og velferðasviðs fái umboð til að ráðstafa framlagi Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu í þágu farsældar barna. Menntaráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
15
Velferðarráð - 104. fundur
Minnisblað sviðsstjóra velferðar- og menntasviðs dags. 22.6.2022, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lagt fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að sviðsstjórar velferðar- og menntasviðs fái umboð til að ráðstafa framlagi Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu í þágu farsældar barna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
16
Leikskólanefnd - 142. fundur
Minnisblað sviðsstjóra velferðar- og menntasviðs dags. 22.6.2022, ásamt þar til greindum fylgiskjölum, lagt fram.
Leikskólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að sviðstjórar mennta- og velferðasviðs fái umboð til að ráðstafa framlagi Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu í þágu farsældar barna. Leikskólanefnd vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
17
Barnaverndarnefnd - 117. fundur
Verkefnastjóri snemmtæks stuðnings og samfelldrar þjónustu kynnir frumvörp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna ásamt umsögnum velferðarsviðs Kópavogs um frumvörpin. Greinargerð verkefnastjóra dags. 25.02.2021 ásamt þar til greindum fylgiskjölum lögð fram til upplýsingar.
Jóhanna Lilja Ólafsdóttir verkefnastjóri fór yfir og kynnti drög að frumvarpi til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
18
Velferðarráð - 79. fundur
Verkefnastjóri snemmtæks stuðnings og samfelldrar þjónustu kynnir frumvörp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna ásamt umsögnum velferðarsviðs Kópavogs um frumvörpin. Greinargerð verkefnastjóra dags. 17.02.2021 ásamt þar til greindum fylgiskjölum lögð fram til upplýsingar.
Lagt fram.
Velferðarráð fagnar frumvörpum til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, en vill ítreka umsögn Sambands íslenskra sveitafélaga um að mikilvægt sé að taka af allan vafa um að sveitafélögum verði tryggt fjármagn til framtíðar til að standa undir kostnaði vegna þeirra nýju verkefna sem fylgja frumvarpinu.