Til baka í nefndaryfirlit
Lista- og menningarráð - 20. fundur
í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Una Björg Einarsdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Sveinn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
- Helga Margrét Reinhardsdóttir - aðalfulltrúi
- Arna Schram - starfsmaður nefndar
Ritari
- Arna Schram
Dagskrá fundar
Ráðið skoðaði undirgöngin ásamt Valgarði Guðjónssyni, forsvarsmanni Punkhátíðarinnar 2014 og forstöðumanni Molans, Andra Þór Lefever.
Ákveðið að fara í ákveðna hugmyndavinnu um hvernig nýta eigi göngin og svæðið í kring.
Valgarður Guðjónsson kom á fundinn og svaraði fyrirspurnum um Punkhátíðina.
Ráðið skoðar í framhaldinu möguleikana á því að efla veg punkhátíðarinnar í Kópavogi.
Drög að nýrri stofnskrá lögð fyrir fundinn. Ráðið lagði til fáeinar breytingar.
Drög að nýrri stofnskrá með áorðnum breytingum, samþykkt.