Hugmyndasamkeppni um nýtingu undirgangna. Tillaga frá Pétri Ólafssyni.
Málsnúmer: 1309396
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 22. fundur
Forstöðumaður UT-deildarinnar fór yfir þá möguleika sem væru færir varðandi hugmyndasamkeppni í gegnum vef bæjarins.
Ráðið þakkar forstöðumanni UT-deildarinnar fyrir komuna og upplýsingarnar.
02
Lista- og menningarráð - 20. fundur
Ráðið skoðaði undirgöngin ásamt Valgarði Guðjónssyni, forsvarsmanni Punkhátíðarinnar 2014 og forstöðumanni Molans, Andra Þór Lefever.
Ákveðið að fara í ákveðna hugmyndavinnu um hvernig nýta eigi göngin og svæðið í kring.
03
Lista- og menningarráð - 19. fundur
Pétur Ólafsson fór yfir hugmynd sína að hugmyndasamkeppni að nýtingu undirganga.
Ráðið ákveður að skoða göngin á næsta fundi sínum að viku liðinni og fá umsjónarmann fasteigna til að opna þau. Jafnframt ætlar ráðið að leita samstarfs við forstöðumann Molans um hugmyndasamkeppnina.
04
Bæjarráð - 2700. fundur
Pétur Ólafsson lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Undirritaður leggur til að blásið verði til hugmyndasamkeppni meðal allra þeirra sem hafa áhuga á nýtingu undirgangnanna við gamla Pósthúsið. Undirgöngin lágu upphaflega frá gömlu skiptistöðinni að gamla Pósthúsinu við Digranesveg. Þau tengdu jafnframt Hamraborgina við samgöngur og auðvelduðu eldri borgurum í Vogatungunni aðgengi að samgöngum og verslun og þjónustu. Undirgöngin hafa alltaf verið samkomustaður unglinga úr Kópavogi og raunar höfuðborgarsvæðinu öllu. Undirgöngin léku stórt hlutverk í pönkmenningunni á áttunda og níunda áratugnum og sleit graffiti listin á Íslandi barnsskónum þar á þeim níunda og tíunda. Í upphaflegum teikningum Benjamíns Magnússonar var gert ráð fyrir litlu leikhúsi þar fyrir ungmenni í bænum. Lagt er til að hugmyndasamkeppni verði haldin um framtíð undirgangnanna sem nú eru mannlaus og læst almenningi.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
Pétur Ólafsson"<o:p></o:p>
Bæjarráð vísar tillögunni til lista- og menningarráðs til úrvinnslu.<o:p></o:p>