Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 31. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi
  • Hannes Heimir Friðbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi
  • Þuríður Backman - aðalfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Hrafn Sveinbjarnarson, forstöðumaður Héraðsskjalasafns, kom í upphafi fundar og fór yfir helstu verkefni safnsins. Lista- og menningarráð fer með stjórn safnsins. Hrafn leggur fram drög að skjalavörslustefnu fyrir Kópavogsbæ fyrir árið 2011. Hann mun leggja fram endurnýjaða stefnu í byrjun nóvember. Ráðið þakkar Hrafni yfirferðina.

Dagskrá fundar

01

Beiðni um lán á Salnum undir sýningu tælenskra dansara 2. september 2014

Máli frestað á síðasta fundi. Umsókn var dregin til baka.

02

Ljóðasamkeppnin Ljóðstafur Jóns úr Vör árið 2015

Forstöðumaður Listhúss gerir grein fyrir komandi hátíð en til stendur að efla hana til muna.

03

Rekstarstyrkur skv. samningi, skýrsla stjórnar og ársreikningur 01.06.13-31.05.14

Farið yfir ársreikning og fleiri mál tengd LK.

Ráðið felur formanni að ræða við formann nemendafélags MK og formann stjórnar LK.

04

Menningarstefna Kópavogs og reglugerð fyrir lista- og menningarráð

Forstöðumaðus Listhúss greinir frá fyrstu skrefunum í vinnu við stefnumótunarvinnu í menningarmálum en greiningarvinna fór fram með forstöðumönnum í menningarmálum í sumar.

Ráðið lýsir yfir ánægju með fyrstu skrefin og fagnar því að vinna sé hafin.