Verkefni, viðburðir og hátíðir næsta vetur og vor.
Málsnúmer: 1008096
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 62. fundur
Óperudagar í Kópavogi voru haldnir að frumkvæði Kópavogsbæjar í fyrsta sinn vorið 2016 og er það í takt við þá þróun og tilraunaverkefni sem eiga sér stað nú á vegum Menningarhúsa bæjarins. Forstöðumaður Listhúss óskar eftir því að ráðið ræði og ákveði hvort halda eigi Óperudögum í Kópavogi áfram, eða fækka eigi viðburðum og einblína á önnur þau verkefni sem ráðist hefur verið í.
Lista- og menningarráð þakkar aðstandendum Óperudaga fyrir góða hátíð í vor en sér sér ekki fært að taka þátt í hátíðinni á næsta ári.
02
Lista- og menningarráð - 58. fundur
Áframhaldandi vinna við aðgerðaráætlun 2016 og næstu ára.
Samþykkt að verja 5,9 milljónum kr. í Óperudaga í Kópavogi, sem kemur í stað Kópavogsdaga í ár.
03
Lista- og menningarráð - 57. fundur
Framhald umræðu um aðgerðaráætlun fyrir árið 2016 og fleiri verkefni sem tengjast henni og stefnumótun almennt.
Lista- og menningarráð samþykkti eftirfarandi bókun: Lista- og menningarráð hvetur til þess að hafin verði vinna við ferðamálastefnu Kópavogs. Ráðið óskar eftir þátttöku í slíkri vinnu í samvinnu við aðrar nefndir bæjarins. Æskilegt er að í þeirri vinnu verði tekið mið af sameiginlegri markaðssetningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu undir heitinu: "Reykjavík loves."
04
Lista- og menningarráð - 56. fundur
Áframhaldandi umræða um aðgerðaráætlun fyrir árið 2016.
Umræðu verður fram haldið á næsta fundi.
05
Lista- og menningarráð - 53. fundur
Forstöðumaður Listhúss Kópavogsbæjar leggur fram yfirlitsskýrslu yfir menningarstarf á vegum bæjarins á árinu 2015.
06
Lista- og menningarráð - 52. fundur
Forstöðumaður Listhúss leggur fram drög að yfirliti yfir starfið á þessu ári og farið yfir starfið framundan, svo sem aðgerðaráætlun fyrir næsta ár.
Yfirlit yfir menningarstarfsemi á vegum bæjarins á árinu 2015 verður lagt fram á næsta fundi ráðsins.
07
Lista- og menningarráð - 49. fundur
Forstöðumaður Listhúss og Guja Sandholt kynna hugmyndir að nýrri hátíð vorið 2016.
Lista- og menningarráð lítur jákvætt á hugmyndina og að hún verði þróuð áfram.
08
Lista- og menningarráð - 48. fundur
Forstöðumaður Listhúss leggur fram tillögu að aðgerðaráætlun fyrir árið 2016 sem unnin var upp úr nýsamþykktri menningarstefnu og stefnumótunarfundi starfsmanna menningarhúsa bæjarins í sumar.
Lista- og menningarráð samþykkir þær meginlínur sem lagðar eru fram í aðgerðaráætluninni með þeim fyrirvara að ráðið geti forgangsraðað verkefnunum frekar og haldið áfram að kostnaðarmeta verkþætti á næstu fundum. Ráðið þakkar starfsmönnum menningahúsa bæjarins fyrir þessa vinnu. Í ljósi þess að bæjarstjórn samþykkti nýja menningarstefnu í vor telur lista- og menningarráð nauðsynlegt að komið verði til móts við aðgerðaráætlunina í því skyni að hægt verði að framfylgja henni.
09
Bæjarstjórn - 1116. fundur
Lögð fram til samþykktar menningarstefna Kópavogs. Lista- og menningarráð samþykkti stefnuna fyrir sitt leyti á fundi þann 16. apríl sl. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar á fundi þann 22. apríl sl.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fagna nýrri menningarstefnu Kópavogs sem er metnaðarfull og framsækin. Ljóst er að ef markmið hennar eiga að nást þarf aukna fjárfestingu í málaflokknum. Í því samhengi ætti að huga að leiðum til að sækja tekjur utan sveitarfélagsins sem og á alþjóða vettvangi. Einnig þarf að vinna aðgerðaáætlun þar sem verkefnum er forgangsraðað og þau tímasett. Bæjarfulltrúar Samfylkingar hlakka til að taka þátt í efla menningu og listir í bænum, með nýja stefnu að vopni.$line$Ása Richardsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson"$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir menningarstefnu Kópavogs með 11 atkvæðum.
10
Bæjarráð - 2772. fundur
Lögð fram til samþykktar menningarstefna Kópavogs. Lista- og menningarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs til afgreiðslu.
Bæjarráð frestar afgreiðslu menningarstefnu Kópavogs og vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
11
Lista- og menningarráð - 41. fundur
Stefnan lögð fram til samþykktar.
Lista- og menningarráð samþykkir stefnuna með áorðnum breytingum.
12
Lista- og menningarráð - 38. fundur
Framhald umræðu.
13
Lista- og menningarráð - 37. fundur
Ný menningarstefna sem unnin var upp úr vinnufundum m.a. með fjölda hagsmunaaðila fyrir jól, kynnt ráðinu, til athugasemdar og eða samþykktar.
Umræðunni verður framhaldið á næsta fundi.
14
Lista- og menningarráð - 32. fundur
Forstöðumaður Listhúss fór yfir næstu skref í stefnumótunarvinnunni.
15
Lista- og menningarráð - 31. fundur
Forstöðumaðus Listhúss greinir frá fyrstu skrefunum í vinnu við stefnumótunarvinnu í menningarmálum en greiningarvinna fór fram með forstöðumönnum í menningarmálum í sumar.
Ráðið lýsir yfir ánægju með fyrstu skrefin og fagnar því að vinna sé hafin.
16
Lista- og menningarráð - 25. fundur
Farið yfir næstu skref við mótun nýrrar menningarstefnu fyrir Kópavogsbæ. Sú sem nú er í gildi er frá árinu 2006.
17
Lista- og menningarráð - 10. fundur
Áframhaldandi umræða
18
Lista- og menningarráð - 9. fundur
Rætt um að gera nýja menningarstefnu fyrir Kópavogsbæ.
Ráðið ætlar að fresta gerð menningarstefnu fram yfir næstu áramót og þar með til næstu fjárhagsáætlunar.
19
Lista- og menningarráð - 8. fundur
Ítarlegar umræður um menningarstefnu Kópavogsbæjar. Ákveðið að haldinn verði fljótlega stefnumótunarfundur með bæjarbúum.
20
Lista- og menningarráð - 363. fundur

Rætt um menningarstefnu Kópavogs og áframhaldandi vinnuferil. Formanni og deildarstjóra falið að vinna áfram með hugmyndir fram að næsta fundi.

21
Lista- og menningarráð - 362. fundur

Rætt um framkvæmd á endurskoðun menningarstefnu. Stefnt að því að þeirri vinnu ljúki fyrir áramót.

22
Lista- og menningarráð - 361. fundur

Lögð var fram menningarstefna Kópavogs, sem fyrri ráð hafa unnið að. Stefnt er að endurskoðun á stefnunni á haustmánuðum.