Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 83. fundur

á Digranesvegi 1, Vatnsenda 1. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi
  • Þórunn Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

    Ritari

    • Soffía Karlsdóttir

    Dagskrá fundar

    01

    Staða lista- og menningarsjóðs

    Staða lista- og menningarsjóðs

    Ráðið lýsir ánægju með stöðu sjóðsins. Úthlutun styrkja verður miðvikudaginn 24. janúar í Gerðarsafni og ráðstöfunarfé sjóðsins er alls 43.220.000,-

    02

    Ljóðastafur Jóns úr Vör. Ljóðasamkeppni

    Kynning á dagskrá.

    Vika ljóðsins er spennandi og ráðið afar stolt af dagskrárviðburðum sem boðið er upp á. Ljóðstafurinn verður afhentur 21. janúar og er verðlaunaféð í heild sinni kr. 630.000,- Verðlaunaljóð verða sett upp í strætó og gerð með þeim bókamerki. Ráðið hvetur til þess að verðlaunaljóð undanfarinna ára verði kynnt t.d. með útgáfu eða öðrum hætti.

    03

    Starfsmannafélag Tónlistarskóla Kópavogs. Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði

    Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði

    Ráðið samþykkir að veita TKTK kr. 650.000 styrk.

    04

    Tónlistarhátíð unga fólksins.Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði

    Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði

    Ráðið samþykkir að veita TUF kr. 650.000 styrk.

    05

    Stofnun öldungaráðs

    Stofnun öldungaráðs kynnt fyrir lista- og menningarráði.

    Lista- og menningarráð fagnar stofnun öldungaráðs og hlakkar til samstarfs við eldri borgara, sem hefur verið gott til þessa.

    06

    Fundir og starfshættir lista- og menningarráðs

    Dagsetningar á næstu fundartímum.

    Næstu fundir ráðsins eru:

    1. febrúar

    15. febrúar

    1. mars

    15. mars