Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Öldungaráð, samráðsfundur

Málsnúmer: 1705174

Ferill máls

01

Forsætisnefnd - 161. fundur

Öldungaráð óskar eftir að forsætisnefnd skoði að ráðið fundi með bæjarstjórn einu sinni á ári.

Karen E. Halldórsdóttir vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis.

Forsætisnefnd ályktar að ekki sé tilefni til að funda reglubundið með öldungaráði þar sem í ráðinu sitji þrír bæjarfulltrúar. Er að því leyti ólík staða á milli ungmennaráðs og öldungaráðs. Þetta komi þó ekki í veg fyrir að bæjarstjórn fundi með öldungaráði af sérstöku tilefni.

02

Öldungaráð - 12. fundur

Birkir Jón Jónsson bendir á að skoða megi sama fyrirkomulag og hjá Ungmennaráði Kópavogs sem fundar með Bæjarstjórn Kópavogs einu sinni ári. Horfi megi til þess að Öldungaráð Kópavogs fundi með sama hætti með bæjarstjórn.

Öldungaráð Kópavogs óskar eftir að Forsætisnefnd skoði að Öldungaráð Kópavogs fundi með Bæjarstjórn Kópavogs.

03

Bæjarstjórn - 1199. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 18. júní, lögð fram umsögn um breytingar á erindisbréfi öldungaráðs. Forsætisnefnd vísaði tillögu að breytingum á erindisbréfinu til bæjarritara til umsagnar þann 21. febrúar sl.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagt erindisbréf fyrir öldungaráð og að samþykkt um öldungaráð Kópavogs falli úr gildi.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum tillögu um að nefndarmönnum verði greidd þóknun fyrir störf sín.

04

Forsætisnefnd - 140. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 18. júní, lögð fram umsögn um breytingar á erindisbréfi öldungaráðs. Forsætisnefnd vísaði tillögu að breytingum á erindisbréfinu til bæjarritara til umsagnar þann 21. febrúar sl.

Forsætisnefnd samþykkir með þremur atkvæðum að leggja til við bæjarstjórn að samþykkt verði framlagt erindisbréf fyrir öldungaráð og felld verði úr gildi samþykkt um öldungaráð Kópavogs, dags. 9. maí 2017.

Með vísan til 51. gr. sveitarstjórnarlaga um að sveitarstjórn sé skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélags hæfilega þóknun fyrir þau störf leggur forsætisnefnd til að greiðslur taki mið af greiðslum til minni fastanefnda.

05

Forsætisnefnd - 133. fundur

Frá deildarstjóra frístundadeildar menntasviðs, tillaga að breytingu á samþykktum fyrir öldungaráð.

Erindið var lagt fyrir á fundi forsætisnefndar þann 7. febrúar sl. en afgreiðslu var frestað og óskað eftir að deildarstjóri frístundadeildar mæti á fund forsætisnefndar.

Forsætisnefnd vísar tillögum að breytingu á erindisbréfi öldungaráðs til bæjarritara til umsagnar. Óskað er eftir að skoðað verði sérstaklega hvort greiða beri þóknun fyrir setu í ráðinni m.a. í ljósi breytts hlutverks vegna breytinga á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra og breytingu á lögum nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga.

06

Forsætisnefnd - 132. fundur

Frá deildarstjóra frístundadeildar menntasviðs, tillaga að breytingu á samþykktum fyrir öldungaráð.

Forsætisnefnd frestar afgreiðslu til næsta fundar og óskar eftir að deildarstjóri frístundadeildar mæti til fundarins.

07

Bæjarstjórn - 1173. fundur

Tekið fyrir til endurskoðunar erindisbréf öldungarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu forsætisnefndar um breytingu á erindisbréfi öldungaráðs með 11 atkvæðum.

08

Forsætisnefnd - 112. fundur

Tekið fyrir til endurskoðunar erindisbréf öldungarráðs.

Forsætisnefnd gerir eftirfarandi breytingu á 5. gr. samþykkta fyrir öldungarráð:

Í stað "Öldungaráðið skal að jafnaði [...] Fella má niður fundi að sumarlagi." komi "Öldungaráð setur sér starfsáætlun í upphafi hvers starfsárs."

2. mgr. 3. gr. falli á brott.

09

Öldungaráð - 4. fundur

Karen E. Halldórsdóttir upplýsir um að nú sé ráðið búið að funda alla formlega fundi ráðsins skv. erindisbréfi öldungaráðs.

Karen E. Halldórsdóttir upplýsir um hlutverk og skipan aðal og varafulltrúa öldungaráðs.

10

Bæjarstjórn - 1171. fundur

Kosning eins varafulltrúa í Öldungaráð sbr. 3. gr. samþykktar um ráðið.

Guðmundur Geirdal kjörinn varafulltrúi í öldungarráð.

11

Velferðarráð - 22. fundur

Lagt fram til kynningar.

12

Lista- og menningarráð - 83. fundur

Stofnun öldungaráðs kynnt fyrir lista- og menningarráði.

Lista- og menningarráð fagnar stofnun öldungaráðs og hlakkar til samstarfs við eldri borgara, sem hefur verið gott til þessa.

13

Menntaráð - 20. fundur

Bréf frá öldungaráði lagt fram.

Menntaráð fagnar stofnun öldungaráðs.

14

Öldungaráð - 1. fundur

Farið verður yfir erindisbréf öldungaráðs og lögð fram tillaga að fundaráætlun öldungaráðs.

Fundarmenn kynntu sig og sínar væntingar til ráðsins.

Þórarinn Þórarinsson var kosinn varaformaður ráðsins. Rædd var tillaga um að boða varamenn á alla fundi.



Menntasvið sjái til þess að öldungaráð verði kynnt í nefndum og ráðum bæjarins.











15

Bæjarstjórn - 1162. fundur

Kosning formanns í öldungaráð.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að Karen E. Halldórsdóttir verði formaður Öldungaráðs.

16

Bæjarstjórn - 1160. fundur

Kosning þriggja aðalfulltrúa í öldungaráð.

Eftirtaldir hlutu kosningu:

Af A-lista;

Karen Halldórsdóttir og Sverrir Óskarsson. Til vara Guðmundur Gísli Geirdal og Theódóra S. Þorsteinsdóttir.

Af B-lista;

Pétur Hrafn Sigurðsson aðalmaður. Til vara Ólafur Þór Gunnarsson.

17

Bæjarstjórn - 1157. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 2. maí, lögð fram til samþykktar drög að samþykkt um Öldungaráð Kópavogs.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða samþykkt um Öldungaráð Kópavogs með 11 atkvæðum.

18

Velferðarráð - 9. fundur

Sverrir Óskarsson upplýsti ráðið um að reglur um öldungaráð verði lagðar fyrir bæjarstjórn þriðjudaginn 9. maí n.k.

19

Bæjarráð - 2869. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 2. maí, lögð fram til samþykktar drög að samþykkt um Öldungaráð Kópavogs.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða samþykkt um Öldungaráð Kópavogs fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.