Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 51. fundur

í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi
  • Þuríður Backman - aðalfulltrúi
  • Hannes Heimir Friðbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

01

Aðventuhátíð við menningarhúsin

Forstöðumaður Listhúss leggur fram dagskrá hátíðarinnar til kynningar en hátíðin er nú haldin við menningarhúsin í Kópavogi 28. til 29. nóvember. Einnig er dagskrá í Gjábakka og listamenn í Auðbrekku opna vinnustofur sínar.

Lista- og menningarráð lýsir yfir ánægju með fjölbreytta dagskrá aðventuhátíðar Kópavogs og staðsetningu hennar.

02

Ljóðasamkeppnin Ljóðstafur Jóns úr Vör

Auglýst hefur verið eftir ljóðum í keppnina, og einnig eftir ljóðum í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Rætt um drög að reglum fyrir keppnina.

Áfram verður unnið að reglum fyrir ljóðasamkeppnina.

03

Menningarstyrkir

Drög að endurskoðuðum reglum lögð fram.

Ráðið leggur til fáeinar breytingar og verða reglurnar svohljóðandi lagðar fram á næsta fundi til endanlegrar samþykktar.

04

Umsókn um styrk vegna árlegra tónleika "Mozart við kertaljós" í Kópavogskirkju

Styrkumsókn lögð fram vegna skyndistyrks.

Ráðið ákveður að styrkja tónleikana um 100.000 kr.

05

Umsókn um styrk vegna ljósmyndasýningar í Gerðarsafni í janúar 2016

Umsókn um skyndistyrk.

Ráðið sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.

06

Nafnlausi leikhópurinn: Umsókn um styrk til að semja og sviðssetja leikritið Þinghól

Umsókn sem vísað var frá bæjarráði til lista- og menningarráðs.

Ráðið óskar eftir frekari upplýsingum um verkefnið, kostnaðaráætlun og mögulegan sýningarstað.

07

Marteinn Sigurgeirssson. Beiðni um styrk til heimildamyndagerðar um þær konur sem komið hafa að landnámi og uppbyggingu í Kópavogi á undanförnum áratugum.

Umsókn var vísað til lista- og menningarráðs.

Ráðið beinir því til umsækjenda að hann sendi inn umsókn að nýju til ráðsins þegar auglýst verður eftir styrkumsóknum nú í desember en þær umsóknir sem þá berast verða teknar fyrir í upphafi næsta árs.