Aðventuhátíð við menningarhúsin
Málsnúmer: 1411330
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 62. fundur
Til stendur að aðventuhátíðin verði öðru sinni við menningarhúsin í ár. Forstöðumaður Listhúss óskar eftir framlagi úr lista- og menningarsjóði til að efla dagskrá í menningarhúsunum, jólaþorpi og skreyta svæðið.
Lista- og menningarráð telur ánægjulegt að hátíðin verði aftur við Menningarhús Kópavogs. Vel tókst til með hátíðina í fyrra og ráðið vill að hátíðin verði efld enn frekar í ár.
02
Lista- og menningarráð - 52. fundur
Uppgjör lagt fram.
Ráðið þakkar öllum þeim sem héldu utan um hátíðina.
03
Lista- og menningarráð - 51. fundur
Forstöðumaður Listhúss leggur fram dagskrá hátíðarinnar til kynningar en hátíðin er nú haldin við menningarhúsin í Kópavogi 28. til 29. nóvember. Einnig er dagskrá í Gjábakka og listamenn í Auðbrekku opna vinnustofur sínar.
Lista- og menningarráð lýsir yfir ánægju með fjölbreytta dagskrá aðventuhátíðar Kópavogs og staðsetningu hennar.
04
Lista- og menningarráð - 48. fundur
Forstöðumaður upplýsir að hátíðin verði flutt á svæðið við menningarhús bæjarins. Óskar eftir styrk úr menningarsjóði til að setja í dagskrá menningarhúsa, tré og jólamarkað.
Ráðið fagnar því að hátíðin sé færð til menningarhúsanna. Ráðið leggur metnað í að hátíðin verði hin glæsilegasta og samþykkir að setja eina milljón króna í hana, til að menningarhúsin geti eflt dagskrá sína á þessum degi svo Kópavogsbúar geti notið byrjun aðventunnar.
05
Lista- og menningarráð - 35. fundur
Rætt um jólahátíðina við menningarhúsin en húsin tóku þátt í hátíðinni með mun öflugri hætti nú en nokkru sinni fyrr. Einnig voru þrjú jólahús á svæðinu sem seldu ýmsan varning og skapaðist við það góð stemning sem studdi við starfsemi húsanna. Jólaljós hafa einnig í fyrsta sinn verið sett á þrjú tré við húsin.
06
Lista- og menningarráð - 34. fundur
Forstöðumaður Listhúss greinir frá hugmyndum að því að efla svæðið í kringum menningarhúsin á aðventunni. Meira verður því um að vera í og við menningarhúsin á aðventuhátíðinni 29. nóvember en áður og eru það fyrstu skrefin í þá átt að efla svæðið á þessum árstíma.
Lista- og menningarráð fagnar þessu framtaki og ætlar að styrkja verkefnið.