Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 65. fundur

í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi
  • Þórunn Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
  • Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

01

Gerðarsafn. Fulltrúi frá Sím kynnir tillögu að samningi vegna listamanna.

Ráðið þakkar formanni Sím (Sambandi íslenskra myndlistarmanna), Jónu Hlíf Halldórsdóttur, fyrir kynninguna og óskar eftir því að listrænn stjórnandi Gerðarsafns, Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, skili greinargerð um sína sýn á tillögur Sím.

02

Ljósaverkefni á Kópavogskirkju

Forstöðumaður menningarmála leggur fram tillögu að ljósalistaverki á Kópavogskirkju á Safnanótt.

Ráðið tekur jákvætt í hugmyndina og mælist til þess að kostnaði verði haldið í lágmarki, eða við 500.000 kr. og að leitað verði verðtilboða í lýsingu á kirkjunni.

03

Umsókn um rekstrar- og útgáfustyrk. Sögufélag Kópavogs

Ráðið ákveður að gera samninga um rekstrarstyrk við kóra, sögufélagið, ritlistarhóp, ljóðahóp Gjábakka og Myndlistarfélag Kópavogs til tveggja ára og vísar þessu erindi til þeirrar afgreiðslu.

04

Umsókn um styrk fyrir Óperudaga 2017. Guðbjörg Sandholt Gísladóttir.

Ráðið sér sér ekki fært að verða við umsókninni um styrk.

05

Ljóðahópur Gjábakka. Umsókn um rekstrarstyrk.

Ráðið ákveður að gera samninga um rekstrarstyrk við kóra, sögufélagið, ritlistarhóp, ljóðahóp Gjábakka og Myndlistarfélag Kópavogs til tveggja ára og vísar þessu erindi til þeirrar afgreiðslu.

06

Umsókn um styrk vegna verkefnis um geðheilsu ungra karlmanna. Stefán Ingvar Vigfússon.

Ráðið samþykkir að veita 180.000 kr. styrk til verkefnisins.

07

Umsókn um styrk vegna Tónlistarhátíðar unga fólksins 2017. Tónlistarhátíð unga fólksins.

Ráðið samþykkir að veita 650.000 kr. styrk til hátíðarinnar.

08

Umsókn um styrk vegna viðburðar um Bob Dylan sem ljóðskáld. Henning Emil Magnússon.

Ráðið sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.

09

Umsókn um styrk til útgáfu eigin tónlistar. Erna Mist Pétursdóttir.

Ráðið sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.

10

Umsókn um styrk vegna viðtala við fyrstu landnema Kópavogs. Marteinn Sigurgeirsson.

Ráðið sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni. Karen E. Halldórsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

11

Umsókn um styrk vegna árlegra "Mozart við kertaljós" tónleika. Camerarctica.

Ráðið samþykkir að veita 100.000 kr. styrk til tónleikahaldsins.

12

Umsókn um styrk vegna verkefnis í tengslum við 500 ára afmæli siðbótar. Kammerhópurinn Reykjavík Barokk.

Ráðið sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.

13

Umsókn um styrk fyrir sýningar á "Lítil saga úr orgelhúsi". Orgelhúsið - félagasamtök.

Ráðið sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.

14

Umsókn um styrk til tónleikahalds. Bylgja Dís Gunnarsdóttir.

Ráðið sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.

15

Umsókn um styrk vegna söngkeppni (fyrir leigu á Salnum). Félag íslenskra söngkennara.

Ráðið samþykkir að veita 400.000 kr. í styrk til verkefnisins.

16

Umsókn um styrk vegna gerðar heimildamyndar um Vatnsenda. Heiðar Bergmann Heiðarsson.

Ráðið sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.

17

Umsókn um rekstarstyrk fyrir árið 2017. Samkór Kópavogs.

Ráðið ákveður að gera samninga um rekstrarstyrk við kóra, sögufélagið, ritlistarhóp, ljóðahóp Gjábakka og Myndlistarfélag Kópavogs til tveggja ára og vísar þessu erindi til þeirrar afgreiðslu.

18

Umsókn um styrk til að gera myndbandsverk. Bjargey Ólafsdóttir.

Ráðið sér sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.

19

Umsókn um styrk vegna verkefna í tilefni 50 ára afmælis hljómsveitarinnar. Skólahljómsveit Kópavogs.

Ráðið samþykkir að veita 500.000 kr í styrk til Skólahljómsveitar Kópavogs vegna 50 ára afmælis hljómsveitarinnar og mælist til þess að þeim fjármunum verði beint í afmælisverkefni sem snúa að afmælistónleikum, nýju tónverki, lokatónleikum vetrarins og/eða uppákomum í Kópavogi.

20

Leikfélag Kópavogs

Ársskýrsla Leikfélags Kópavogs. Reikningur skv. rekstrar- og samstarfssamningi, skýrsla stjórnar og ársreikningur 2015-2016.

Ráðið samþykkir ársskýrslu Leikfélags Kópavogs. Í ljósi þess að samningur Kópavogsbæjar við LK rennur út á næsta ári ákveður ráðið að skipuð verði nefnd sem meti framtíð samstarfsins og þar með hvort og þá hvernig samstarfinu verði haldið áfram.

21

Lýðheilsustefna í Kópavogi. Óskað eftir umsögn fastanefnda bæjarins.

Lista- og menningarráð fagnar tilkomu og mótun nýrrar lýðheilsustefnu fyrir Kópavog og stefnir að því að Menningarhúsin í Kópavogi og umhverfi þeirra taki mið af lýðheilsu bæjarins. Sér í lagi telur lista- og menningarráð að eftirfarandi meginmarkmið megi tengja lýðheilsu og menningu.

Markmið 4.

Efla fræðslu um geðheilbrigði.

Lista- og menningarráð telur að öflugt menningarlíf með þátttöku allra geti verið liður í bættu geðheilbrigði almennings. Menningarhúsin í Kópavogi og viðburðir taka mið af því að gleðja og létta lund almennings ásamt því að leitast hefur verið sérstaklega eftir því undanfarin ár að opna dyr Menningarhúsanna enn frekar. Fjölskyldustundir Menningarhúsanna eru að mælast vel fyrir og eru liður í að auka samveru fjölskyldna á ódýran og aðgengilegan hátt. Aukin þátttaka almennings í menningarviðburðum er þýðingarmikill liður í að virkja bæjarbúa og hvetja jafnt unga sem aldna til félagslegrar virkni.

Markmið 5

Skapa umhverfi sem hvetur til aukinnar hreyfingar og útivistar.

Lista- og menningarráð bendir á að útisvæði Menningarhúsa Kópavogs megi gangast undir nýja lífdaga með því markmiði að fjölga þeim sem njóta nálægðar við Menningarhúsin. Löngum hefur verið talað um garð, skautasvell, gosbrunn, tónlistasvæði eða listaverkagarð sem lið í að efla þetta umhverfi.

Markmið 6.

Umhverfi og öryggi.

Lista- og menningarráð telur að í samhengi við endurnýjun lífdaga útisvæðis þurfi nauðsynlega að fara að huga að lýsingu í kringum Menningarhúsin. Svæðið er afar dimmt og því á köflum kjörið til myrkraverka ásamt því að erfitt er að sjá hvar gengið er með tilheyrandi slysahættu.


22

Málefni Bókasafns Kópavogs 2016

Lagt fram til upplýsingar minnisblað forstöðumanns Bókasafns Kópavogs um rússnesku deildina í safninu.

Ráðið þakkar forstöðumanni Bókasafns Kópavogs fyrir upplýsingarnar.

23

Beiðni um að hafa ritatrillur í Hamraborg. Vottar Jehóva. Umhverfis- og samgönguráð óskar eftir umsögn.

Ráðið telur sig hvorki getað leyft né bannað fólki að kynna sínar lífsskoðanir fyrir framan Menningarhúsin í Kópavogi.