Hamraborg 4,Málefni Listasafns Kópavogs- Gerðarsafns 2010
Málsnúmer: 1003007
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 89. fundur
Lista- og menningarráð þakkar listráði Gerðarsafns fyrir sín störf. Skipunartíma þess lýkur 31. maí 2018. Ráðið ályktar að tilraunaverkefnið verði metið í upphafi næsta kjörtímabils og leggur til að skipan slíks ráðs verði formgert betur í samstarfi við forstöðumann menningarmála.
02
Lista- og menningarráð - 65. fundur
Ráðið þakkar formanni Sím (Sambandi íslenskra myndlistarmanna), Jónu Hlíf Halldórsdóttur, fyrir kynninguna og óskar eftir því að listrænn stjórnandi Gerðarsafns, Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, skili greinargerð um sína sýn á tillögur Sím.
03
Lista- og menningarráð - 60. fundur
Skipan listráðs Gerðarsafns. Lögð fram skipan listráðs Gerðarsafns ásamt greinargerð listræns stjórnanda safnsins fyrir valinu. Ráðið er skipað til eins árs og er listrænum stjórnanda til listrænnar ráðgjafar. Í listráðinu eru auk Kristínar Dagmar Jóhannesdóttur, Bjarni Sigurbjörnsson, Ólöf Nordal og Sirra Sigrún Sigurðardóttir. Fjöldi funda og nánara fyrirkomulag er ákveðið í samráði við forstöðumann Listhúss Kópavogsbæjar.
Lista- og menningarráð fagnar þessu skrefi enda sé með því verið að styrkja faglegt starf Gerðarsafns.
04
Lista- og menningarráð - 361. fundur

Guðbjörg lagði fram ársskýrslu safnsins fyrir árið 2009, og sagði frá helstu hlutverkum safnsins. Hún greindi frá gjöf sem safninu barst, verk Valgerðar Briem. Hún sagði einnig frá safneign á verkum Gerðar Helgadóttur og því kynningarstarfi sem á sér stað á hennar verkum. Von er á nýrri bók um Gerði á næstunni. Hún greindi frá helstu sýningum á árinu, auk sölu á safnbúðarmunum. Guðbjörg greindi frá hinum ýmsu styrkjum sem safnið fær til forvinnslu á listmunum.

05
Lista- og menningarráð - 359. fundur
Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður Listasafns Kópavogs-Gerðasafns kom á fundinn.

Guðbjörg Kristjánsdóttir fór yfir verkefni safnsins sem verið er að vinna með. Samþykkt er að halda sýningu með verkum Barböru Árnason á árinu 2011 í tilefni af hundrað ára fæðingarafmæli hennar. Einnig verður sýning í safninu á verkum RAX, Ragnars Axelssonar ljósmyndara sem útnefndur var heiðurslistamaður bæjarins 2010.

06
Lista- og menningarráð - 352. fundur

Guðbjörg Kristjánsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns kom á fundinn. Hún kynnti hugmyndir að sýningum í safninu seinni hluta árs.