Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 28. fundur

í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Una Björg Einarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Pétur Krogh Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Helga Margrét Reinhardsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjálmar Hjálmarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Matthías Páll Imsland - aðalfulltrúi

Ritari

  • Arna Schram

Dagskrá fundar

01

RIFF kvikmyndahátíð.

Drög að samningi sem unnin voru af hálfu RIFF, lista- og menningarráðs og forstöðumanns Listhúss lögð fram fyrir lista - og menningarráð.

Lista- og menningarráð samþykkir að ganga til samstarfs við RIFF vegna kvikmyndahátíðarinnar 2014. Hátíðin fær styrk úr lista- og menningarsjóði að upphæð kr. 3,5 milljónir. Hluti hátíðarinnar fram í menningarhúsum bæjarins.

02

Kópavogsdagar 2014

Endanleg dagskrá lögð fram.

Ráðinu líst vel á fjöbreytta dagskrá Kópavogsdaga og fagnar því að verið séð efla hátíðina.

03

Heiðurslistamaður og bæjarlistamenn Kópavogs.

Ákveðið að útnefning heiðurslistamanns og bæjarlistamanna fari fram í Gerðarsafni 11. maí. Hjálmar Hjálmarsson vék af fundi undir þessum lið.

04

Beiðni um styrk til að setja upp verkið "Fimmkallar" Norðanbál.

Framhald umræðu.

Ráðið sér sér ekki fært að styrkja þetta verkefni.