Heiðurslistamaður Kópavogs og bæjarlistamaður Kópavogs.
Málsnúmer: 1006103
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 71. fundur
Verðandi bæjarlistamaður fundar með ráðinu. Útnefningar verða gerðar opinberar 11. maí á afmælisdegi Kópavogsbæjar.
02
Lista- og menningarráð - 70. fundur
Innsendar tillögur að heiðurslistamanni og bæjarlistamanni. Frestur til að senda inn tillögur rann út 6.apríl. Ráðið er ekki bundið við að fara að innsendum tillögum.
Endanlegri afgreiðslu málsins er frestað til næsta fundar en stefnt er að því að útnefning fari fram 11. maí á afmæli Kópavogsbæjar.
03
Lista- og menningarráð - 56. fundur
Lista- og menningarráð ákveður að auglýsa eftir tillögum.
04
Lista- og menningarráð - 47. fundur
Formleg útnefning og athöfn fór fram í Gamla Kópavogsbænum.
Lista- og menningarráð hefur útnefnt Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndara og Norðurheimskautsfara sem heiðurslistamann Kópavogsbæjar í ár og Jón Adolf Steinólfsson myndhöggvari hefur verið útnefndur bæjarlistamaður. Tilgangurinn er að varpa ljósi á þá fjölmörgu og hæfileikaríku listamenn sem búa í Kópavogi og hafa átt þátt í því að auðga menningarlíf bæjarins í gegnum tíðina. Jón Adolf mun auk þess sinna menningarfræðslu í vetur og kenna grunnskólanemum í Kópavogi útskurð og jákvæða hugsun.
05
Lista- og menningarráð - 46. fundur
Bæjarlistamaður og heiðurslistamaður verða útnefndir við hátíðlega athöfn í gamla Kópavogsbænum 10. september nk. kl. 16:00.
06
Lista- og menningarráð - 41. fundur
Ráðið ákveður að auglýsa eftir bæjarlistamanni.
07
Lista- og menningarráð - 37. fundur
Ráðið ákveður að auglýst verði eftir bæjarlistamönnum á næstu vikum og að um það bil 800 þúsund kr. verði settar í verkefnið.
08
Lista- og menningarráð - 36. fundur
Bæjarlistamennirnir, þær Salka Sól og Blær kynntu nefndinni vinnu sína meðal nemenda í grunnskólum Kópavogs. Verkefnið fólst m.a. í að kenna skólabörnum að rappa.
Ráðið þakkar bæjarlistamönnum fyrir frábært starf innan grunnskóla Kópavogs.
09
Lista- og menningarráð - 29. fundur
Lista- og menningarráð leggur fram vinnurreglur um val á bæjarlistamanni og heiðurslistamanni Kópavogs.
10
Lista- og menningarráð - 28. fundur
Ákveðið að útnefning heiðurslistamanns og bæjarlistamanna fari fram í Gerðarsafni 11. maí. Hjálmar Hjálmarsson vék af fundi undir þessum lið.
11
Lista- og menningarráð - 27. fundur
Framhald umræðna og ákvörðun tekin.
12
Lista- og menningarráð - 26. fundur
Umræðu fram haldið.
13
Lista- og menningarráð - 25. fundur
Ráðið fjallar um þetta á almennum nótum.
14
Lista- og menningarráð - 9. fundur
Áframhaldandi umræður.
15
Lista- og menningarráð - 8. fundur
Áframhaldandi umræða.
16
Lista- og menningarráð - 7. fundur
Áframhaldandi umræður.
17
Lista- og menningarráð - 6. fundur
Áframhaldandi umræða
18
Lista- og menningarráð - 5. fundur
Formaður lista- og menningarráðs leggur fram drög að verklagsreglum við val á heiðurslistamanni og bæjarlistamanni.
19
Lista- og menningarráð - 4. fundur
Frá formanni lista- og menningarráðs, stefnumörkun um útnefningu heiðurslistamanns. Umræða frá síðasta fundi.
Ákveðið að formaður lista- og menningarráðs leggi fram tilllögu til umræðu á næsta fundi.
20
Lista- og menningarráð - 3. fundur
Frá formanni lista- og menningarráðs, stefnumörkun um útnefningu heiðurslistamanns.
Lista- og menningarráð frestar afgreiðslu til næsta fundar.
21
Lista- og menningarráð - 359. fundur
<DIV><DIV>Samþykkt var að finna verðugan stað fyrir nöfn heiðurslistamanna Kópavogs. Formanni falið að fylgja því eftir og úrvinnsla málsins. </DIV></DIV>