Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 129. fundur

í Borgum - safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalmaður
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalmaður
  • Margrét Vilborg Tryggvadóttir - aðalmaður
  • Páll Marís Pálsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Páll Marís Pálsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Vigdís Ásgeirsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

    Ritari

    • Soffía Karlsdóttir

    Dagskrá fundar

    01

    Vettvangsferð - Útilistaverk og undirgögn við Hamraborg

    Úttekt á tveimur útilistaverkum í geymslu Safnaðarheimilis og vettvangsferð um undirgöngin við Hamraborg.

    Vegna samantektar forstöðumanns Gerðarsafns vill lista og menningarráð vekja athygli á og lýsa yfir áhyggjum á ástandi listaverka bæjarins sem mörg hver þarfnast tafarlausra viðgerða og hreinsunar. Slíkt er ekki innan fjárhagsramma ráðsins og leggur það því til að slíkt verði rætt í komandi fjárhagsáætlunargerð Kópavogsbæjar.

    Ennfremur bendir ráðið á að í menningarstefnu bæjarins er lögð áhersla á að glæða listir og menningu í opinberu rými. Lista- og menningarráð óskar því eftir umræðu í bæjarstjórn og komandi fjárhagsáætlun um að fjölga útilistaverkum til að lífga upp á nærumhverfi Kópavogsbúa.

    Eftir vettvangsferð um undirgöngin við Hamraborg óskar lista- og menningarráð eftir því að skipulagssvið geri úttekt og kostnaðarmat á annars vegar standsetningu ganganna þannig að núverandi útlit haldi sér og hins vegar kostnaðarmat og greiningu á því hvernig hægt væri að nýta göngin fyrir listviðburði á borð við sýningar eða gjörninga með því að bæta aðgengi og lýsingu.

    Í vettvansferð lista- og menningarráðs voru einnig með í för Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns, Lísa Valdimarsdóttir forstöðumaður bókasafnsins, Finnur Ingimarsson forstöðumaður Náttúrufræðistofu og Elísabet Indra Ragnarsdóttir verkefna- og viðburðarstjóri menningarmála.