Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 125. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalmaður
  • Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalmaður
  • Margrét Vilborg Tryggvadóttir - aðalmaður
  • Páll Marís Pálsson - aðalfulltrúi
  • Vigdís Ásgeirsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

    Ritari

    • Soffía Karlsdóttir

    Dagskrá fundar

    01

    Rekstrar- og samstarfssamningur Leikfélagsins og Kópavogsbæjar. Ársreikningur og skýrsla stjórnar fyrir liðið leikár

    Ingólfur Arnarson fjármálastjóri og Salvör Þórisdóttir lögfræðingur sátu fundinn undir þessum lið.

    Málið rætt.

    Ingólfur yfirgefur fundinn kl. 17:17.

    02

    Menningarhúsin í Kópavogi

    Drög að minnisblaði lögfræðideildar vegna erindisbréfs nefndarinnar.

    Salvör Þórisdóttir lögfræðingur sat fundinn undir þessum lið.

    Vinnu verður framhaldið í samræmi við umræðu fundarins.

    Salvör yfirgefur fundinn kl. 17:39.

    03

    Ráðgjafanefnd Gerðarsafns

    Skipan ráðgjafanefndar Gerðarsafns.

    Málinu frestað.

    04

    Tíbrá, tónleikaröð 2021-2022. Tillögur

    Tillögur að Tíbrá tónleikaröð Salarins 2021-2022.

    Lista- og menningarráð lýsir yfir mikilli ánægju með val listamanna í tónleikaröðinni Tíbrá 2021-2022.

    05

    Fyrirspurn frá fulltrúum Samfylkingarinnar og Viðreisnar varðandi vinnustaðagreiningu

    Staða á vinnustaðagreiningu.

    Vigdís víkur undir þessum lið.

    Mannauðsstjóri Kópavogs er með í undirbúningi að hefja vinnustaðagreiningu í haust.

    06

    Fyrirspurn frá fulltrúum Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata varðandi ráðningu forstöðumanns

    Staða á ráðningu forstöðumanns.

    Vigdís tekur aftur sæti á fundinum.

    Auglýst verður eftir forstöðumanni síðsumars.

    07

    Fyrirspurn frá fulltrúum Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata varðandi nýtingu á neðanjarðargöngum

    Nýting á neðanjarðargöngum við Hamraborg.

    Forstöðumanni er falið að bóka skoðunarferð um göngin.

    08

    17 júní 2021

    Tillögur að útfærslu 17. júní í Kópavogi 2021

    Lista- og menningarráð felur forstöðumanni menningarmála að vinna áfram með tillögurnar að 17. júní hátíðarhöldunum út frá þeim takmörkunum sem verða í samfélaginu á þeim tíma.