Rekstrar- og samstarfssamningur Leikfélagsins og Kópavogsbæjar. Ársreikningur og skýrsla stjórnar fyrir liðið leikár
Málsnúmer: 1909217
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 130. fundur
Samningur við Leikfélag Kópavogs.
Ingólfur Arnarson fjármálastjóri situr fundinn undir þessum lið.
Lista- og menningarráð leggur áherslu á að gæta jafnræðis gagnvart styrkþegum. Ráðið ítrekar boð um undirritun samnings.
02
Lista- og menningarráð - 126. fundur
Endurskoðun á samningi við Leikfélag Kópavogs.
Málið rætt.
03
Lista- og menningarráð - 125. fundur
Ingólfur Arnarson fjármálastjóri og Salvör Þórisdóttir lögfræðingur sátu fundinn undir þessum lið.
Málið rætt.
Ingólfur yfirgefur fundinn kl. 17:17.
04
Lista- og menningarráð - 124. fundur
Bréf frá Leikfélagi Kópavogs vegna samnings milli Kópavogsbæjar og Leikfélags Kópavogs.
Málið rætt.
05
Lista- og menningarráð - 123. fundur
Samningur við Leikfélag Kópavogs.
Málið rætt og tekið upp að nýju á næsta fundi.
06
Lista- og menningarráð - 122. fundur
Málefni Leikfélags Kópavogs. Drög að nýjum samningi.
Lista- og menningarráð samþykkir að senda samninginn til yfirlestrar hjá lögfræðideild bæjarins og í framhaldinu til Leikfélags Kópavogs.
07
Lista- og menningarráð - 121. fundur
Samningur við Leikfélag Kópavogs.
Málinu frestað.
08
Lista- og menningarráð - 118. fundur
Samningur við Leikfélag Kópavogs.
Lista- og menningarráð óskar eftir fundi með fulltrúum frá Leikfélagi Kópavogs 12. nóvember.
09
Lista- og menningarráð - 117. fundur
Samningur við Leikfélag Kópavogs.
Lista- og menningarráð felur forstöðumanni menningarmála að kanna rekstrarfyrirkomulag annarra leikfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Málið verður tekið upp á næsta fundi lista- og menningarráðs.
10
Lista- og menningarráð - 116. fundur
Samningur við Leikfélag Kópavogs.
Málið rætt og frestað.
11
Lista- og menningarráð - 115. fundur
Samningur við Leikfélag Kópavogs.
Lista- og menningarráð ræddi málið en frestar afgreiðslu til næsta fundar.
12
Lista- og menningarráð - 114. fundur
Málefni Leikfélags Kópavogs.
Lista- og menningarráð þakkar Leikfélagi Kópavogs fyrir góðar móttökur í leikhúsinu. Unnið verður að endurnýjun rekstrarsamnings við LK.
13
Lista- og menningarráð - 106. fundur
Skýrsla Leikfélags Kópavogs lögð fram.
Lista- og menningarráð gerir ekki athugasemd við ársreikning og skýrslu Leikfélags Kópavogs. Ráðið felur forstöðumanni menningarmála að boða stjórn Leikfélagsins til fundar í húsakynnum þeirra í byrjun árs 2020 þar sem rekstrarsamningurinn rennur út í lok sama árs.
14
Lista- og menningarráð - 105. fundur
Skýrsla Leikfélags Kópavogs lögð fram.
Skýrsla Leikfélags Kópavogs lögð fram en umræðu frestað.
15
Bæjarráð - 2969. fundur
Frá leikfélagi Kópavogs, dags. 27. ágúst, lagður fram reikningur vegna árlegs styrks bæjarins til leikfélagsins skv. rekstrar- og samstarfssamningi þar um, ásamt reikningum félagsins og skýrslu stjórnar fyrir liðið leikár.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til lista- og menningarráðs.