Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 153. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
  • Elvar Bjarki Helgason - aðalmaður
  • Helga Hauksdóttir - aðalmaður
  • Ísabella Leifsdóttir - aðalmaður
  • Jónas Skúlason - aðalmaður
  • Margrét Vilborg Tryggvadóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Margrét Ásta Arnarsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Margrét Ásta Arnarsdóttir - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Vilborg Soffía Karlsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Soffía Karlsdóttir

Dagskrá fundar

01

Ársskýrsla menningarmála 2022

Ársskýrsla 2022 og starfsáætlun 2023 lögð fram til kynningar.

Lista- og menningarráð þakkar góða kynningu á ársskýrlsu menningarmála.

02

Stefnumótun menningarmála í Kópavogi

Lista- og menningarráð leggur til að haldinn verði stefnumótunarfundur í maí með starfsfólki menningarhúsa bæjarins þar sem tillögur um endurskoðun starfsemi menningarhúsanna verður tekin fyrir.


Bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vina Kópavogs, Viðreisnar og Pírata gera alvarlegar athugasemdir við að trúnaði hafi ekki verið aflétt af fundargerðum Lista- og menningarráðs um tillögur bæjarstjóra um starfsemi menningarhúsanna svo hvorki bæjarbúar, fjölmiðlar né fagfólk geti leitað sér upplýsinga um afgreiðslu málsins og umfjöllun í ráðinu. Það er á ábyrgð þeirra sem kröfðust trúnaðar um málið að aflétta honum við afgreiðslu málsins. Þetta eru algjörlega óásættanleg vinnubrögð og við lítum á þetta sem aðför að upplýsingarétti almennings og tilraun til að þagga niður í fulltrúum minnihlutans og þeirra sjónarmiðum. Þá er ámælisvert að málið hafi verið afgreitt í bæjarstjórn án þess að öll gögn málsins hafi verið gerð opinber.

Margrét Tryggvadóttir

Ísabella Leifsdóttir

Elvar Helgason

Eva Sjöfn Helgadóttir


Bókun:

Við viljum vekja athygli á að bæjarstjórnarfundi lauk kl. 20:15 í gærkvöld. Verklag bæjarins er þannig að fundargerðir birtast daginn eftir bæjarstjórnarfund. Allar fundargerðir um málið, ásamt gögnum sem voru bundin trúnaði, munu vera birtar í dag. Fulltrúar meirihlutans þakka starfsmönnum bæjarins fyrir góða vinnu.

Berglind Sveinsdóttir

Helga Hauksdóttir

Jónas Skúlason

03

Bæjarlistamaður Kópavogs 2023

Tillögur um bæjarlistamann Kópavogs 2023 teknar til afgreiðslu.

Lista- og menningarráð samþykkir einróma val bæjarlistamanns Kópavogs 2023 og verður tilkynnt um valið í maí.

04

17. júní 2023

Tilboð í sviðsbúnað fyrir 17. júní og fjárhagsáætlun hátíðarhaldanna.

Lista- og menningarráð felur forstöðumanni menningarmála að framkvæma hátíðarhöldin innan fjárheimilda. Einnig að skoðaður verði sá möguleiki á að bjóða tónlistarfólki bæjarins að koma fram á tónleikum um kvöldið.

05

Umsókn um rekstrarstyrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Beiðni um styrk vegna prentunar á nótnahefti fyrir Landsmót íslenskra barnakóra.

Lista- og menningarráð samþykkir að veita Landsmóti íslenskra barnakóra kr. 190.000 vegna prentunar á nótnahefti.