Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Lista- og menningarráð - 169. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - formaður
  • Elvar Bjarki Helgason - aðalmaður
  • Helga Hauksdóttir - aðalmaður
  • Ísabella Leifsdóttir - aðalmaður
  • Jónas Skúlason - aðalmaður
  • Margrét Vilborg Tryggvadóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Árni Pétur Árnason - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Vilborg Soffía Karlsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Anna Kristín Guðmundsdóttir - lögfræðingur

Ritari

  • Anna Kristín Guðmundsdóttir

Dagskrá fundar

01

Fundartímar lista- og menningarráðs

Fundartímar ráðsins árið 2025.

Fyrsti fundur ráðsins árið 2025 verður miðvikudaginn 8. janúar kl. 8:15. Eftir það verða fundir ráðsins fyrsta miðvikudag í mánuði frá febrúar til maí og frá september til október kl. 8:15. Nóvemberfundur ráðsins verður kl. 16:00. Samtals átta fundir.

02

Framlag lista- og menningarráðs til menningarstarfsemi Kópavogsbæjar 2025

Framlag lista- og menningarráðs til menningarhúsanna árið 2025.

Lista- og menningarráð samþykkir að veita 24.550.000 kr. framlag til menningarhúsanna árið 2025 sem er hækkun um 1.500.000 kr. frá árinu áður, þar af 500.000 kr. til listaverkakaupa Gerðarsafns.

03

Tillaga að listaverkakaupum Gerðarsafns 2024

Kynning á tillögum að listaverkakaupum Gerðarsafns árið 2024.

Tillögur að listaverkakaupum eru samþykktar.

04

Jólahús Kópavogs 2024

Val á jólahúsi Kópavogs 2024.

Lista og menningarráð felur forstöðumanni menningarmála að útfæra valið.

05

Umsókn um styrk frá lista- og menningarsjóði Kópavogs

Y gallerí óskar eftir að lista- og menningarráð skoði að nýju umsókn þeirra um styrk og sendir inn frekari skýringar og fjárhagsáætlun.

Lista- og menningarráð samþykkir að veita Y gallerí styrk að upphæð 1.200.000 kr. til áframhaldandi starfsemi.

06

Beiðni Árna Péturs Árnasonar um minnisblað frá innkaupadeild um þjónustukaup á Menningardeild og menningarstofnunum vegna breytinga

Máli frestað frá fundi ráðsins 2. október 2024. Beiðni Árna Péturs Árnasonar um minnisblað frá innkaupadeild um þjónustukaup á Menningardeild og menningarstofnunum vegna breytinga

Svar bæjarritara frá 30. september 2024 lagt fram.

Bókun áheyrnarfulltrúa Árna Péturs Árnasonar og Ísabellu Leifsdóttur:

"Í erindisbréfi Lista- og menningarráðs segir: “10. gr. Hlutverk og verkefni ráðsins eru m.a. að: 2. hafa eftirlit með rekstri málaflokksins og að samþykktum og stefnumörkum Kópavogsbæjar sé framfylgt á verksviði ráðsins." Téð verksvið ráðsins eru menningarhús bæjarins og lista- og menningarsjóður.

Það að bæjarráð hafi heimildir til eftirlits útilokar ekki að lista- og menningarráð sinni eftirlitinu, enda starfar lista- og menningarráð í umboði bæjarráðs og taka ákvarðanir þess ekki gildi fyrr en við staðfestingu í bæjarráði. Hlutverk lista- og menningarráðs er að létta undir bæjarráði og því fullkomlega eðlilegt að lista- og menningarráð sinni því hlutverki, þ.e. eftirliti, sem bæjarráð hefur falið því. Téð fyrirspurn er dæmi um slíkt eftirlit."

07

Tillaga Árna Péturs Árnasonar um skipulag, skipurit og boðleiðir í menningarmálum

Máli frestað frá fundi 2. október 2024. Tillaga Árna Péturs Árnasonar um skipulag, skipurit og boðleiðir í menningarmálum.

Málinu er vísað til umsagnar bæjarritara.

08

Ósk Árna Péturss Árnasonar, áheyrnarfulltrúa Pírata, um kynningu á áformum um almenningsbókasafn við Hvarfaskóla

Fyrirspurn og beiðni Árna Péturs Árnasonar um kynningu á áformum um almenningsbókasafn við Hvarfaskóla.

Ekki er tímabært að kynna áform um hvers konar bókasafn verður við nýjan skóla í Vatnsendahvarfi þar sem hönnun skólans er á frumstigi. Lista- og menningarráð verður haft með í ráðum þegar línur hafa skýrst og er forstöðumanni menningarmála falið að fylgjast með framvindu málsins.

09

Ósk Árna Péturs Árnasonar um yfirlit yfir starfssamninga við lykilaðila í menningarlífi Kópavogs

Beiðni Árna Péturs Árnasonarum yfirlit yfir starfssamninga við lykilaðila í menningarlífi Kópavogs.

Í dag eru engir starfssamningar virkir við lykilaðila í menningarlífi bæjarins.