Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Beiðni Árna Péturs Árnasonar um minnisblað frá innkaupadeild um þjónustukaup á Menningardeild og menningarstofnunum vegna breytinga

Málsnúmer: 24052301

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 169. fundur

Máli frestað frá fundi ráðsins 2. október 2024. Beiðni Árna Péturs Árnasonar um minnisblað frá innkaupadeild um þjónustukaup á Menningardeild og menningarstofnunum vegna breytinga

Svar bæjarritara frá 30. september 2024 lagt fram.

Bókun áheyrnarfulltrúa Árna Péturs Árnasonar og Ísabellu Leifsdóttur:

"Í erindisbréfi Lista- og menningarráðs segir: “10. gr. Hlutverk og verkefni ráðsins eru m.a. að: 2. hafa eftirlit með rekstri málaflokksins og að samþykktum og stefnumörkum Kópavogsbæjar sé framfylgt á verksviði ráðsins." Téð verksvið ráðsins eru menningarhús bæjarins og lista- og menningarsjóður.

Það að bæjarráð hafi heimildir til eftirlits útilokar ekki að lista- og menningarráð sinni eftirlitinu, enda starfar lista- og menningarráð í umboði bæjarráðs og taka ákvarðanir þess ekki gildi fyrr en við staðfestingu í bæjarráði. Hlutverk lista- og menningarráðs er að létta undir bæjarráði og því fullkomlega eðlilegt að lista- og menningarráð sinni því hlutverki, þ.e. eftirliti, sem bæjarráð hefur falið því. Téð fyrirspurn er dæmi um slíkt eftirlit."

02

Lista- og menningarráð - 167. fundur

Svarbréf við beiðni Árna Péturs Árnasonar áheyrnarfulltrúa Pírata um upplýsingar er varða þjónustukaup.

Lista- og menningarráð frestar málinu.

03

Lista- og menningarráð - 164. fundur

Beiðni frá Árna Pétri Árnasyni áheyrnarfulltrúa Pírata um minnisblað frá innkaupadeild um það hvort þjónustukaup menningardeildar og menningarstofnana vegna breytinga á deildinni og stofnunum árin 2023 og 2024 samræmist innkaupastefnu bæjarins.

Samþykkt að vísa málinu til umsagnar bæjarritara.