Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Kópavogsbæ
Málsnúmer: 0809008
Ferill máls
01
Forsætisnefnd - 128. fundur
Samkvæmt 29. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 ber nýrri sveitarstjórn að meta hvort ástæða sé til að endurskoða gildandi siðareglur bæjarstjórnar. Bæjarstjórn fól forsætisnefnd á fundi sínum þann 12. júní sl. að fara yfir gildandi siðareglur og gera tillögu til bæjarstjórnar um staðfestingu þeirra eða tillögur til breytinga. Forsætisnefnd fól bæjarritara að afla upplýsinga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um hvort siðanefnd myndi gefa frekari leiðbeiningar til nýkjörinna sveitarstjórna við gerð siðareglna.
Forsætisnefnd mun að sinni bíða með afgreiðslu málsins þar til siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur lokið við að uppfæra leiðbeiningar sínar til sveitarfélaga.
02
Forsætisnefnd - 117. fundur
Samkvæmt 29. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 ber nýrri sveitarstjórn að meta hvort ástæða sé til að endurskoða gildandi siðareglur bæjarstjórnar. Bæjarstjórn fól forsætisnefnd á fundi sínum þann 12. júní sl. að fara yfir gildandi siðareglur og gera tillögu til bæjarstjórnar um staðfestingu þeirra eða tillögur til breytinga.
Forsætisnefnd felur bæjarritara að afla upplýsinga hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um hvort siðanefnd muni gefa frekari leiðbeiningar til nýkjörinna sveitarstjórna við gerð siðareglna.
03
Bæjarstjórn - 1178. fundur
Lagðar fram gildandi siðareglur Kópavogsbæjar sem samþykktar voru í bæjarstjórn þann 27. janúar 2015. Forseti leggur til að forsætisnefnd fari yfir gildandi siðareglur og geri tillögu til bæjarstjórnar um staðfestingu þeirra eða tillögur til breytinga.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.
04
Bæjarstjórn - 1111. fundur
Lagðar fram til undirritunar siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ sem hafa fengið staðfestingu innanríkisráðuneytisins.
Lagt fram.
05
Bæjarráð - 2763. fundur
Frá innanríkisráðuneytinu, dags. 12. febrúar, staðfesting ráðuneytisins á siðareglum fyrir kjörna fulltrúa Kópavogsbæjar.
Lagt fram.
06
Bæjarstjórn - 1109. fundur
Síðari umræða.
Ólafur Þór Gunnarsson gerði grein fyrir breytingartillögum forsætisnefndar á siðareglum bæjarstjórnar Kópavogs.$line$$line$Ása Richardsdóttir lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$"Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að leita umsagnar Siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga um endurskoðaða tillögu forsætisnefndar á Siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Kópavogsbæ.$line$Ása Richardsdóttir"$line$$line$Tillaga Ásu Richardsdóttur var felld með sjö atkvæðum en þrír greiddu atkvæði með henni. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði. Atkvæði féllu þannig: Ármann Kr. Ólafsson, Karen E. Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal, Theódóra S Þorsteinsdóttir, Jón Finnbogason og Sverrir Óskarsson greiddu atkvæði gegn tillögunni en Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir og Birkir Jón Jónsson greiddu atkvæði með henni. Ólafur Þór Gunnarsson greiddi ekki atkvæði.$line$$line$Þá bar forseti undir fundinn framlagða tillögu forsætisnefndar að breytingum á siðareglum kjörinna fulltrúa. Bæjarstjórn samþykkti með ellefu atkvæðum tillögu forsætisnefndar að breytingum á siðareglum kjörinna fulltrúa.
07
Forsætisnefnd - 38. fundur
Forsætisnefnd vísar breytingartillögum að siðareglum kjörinna fulltrúa til síðari umræðu bæjarstjórnar.
08
Forsætisnefnd - 36. fundur
Forsætisnefnd mun taka siðareglur kjörinna fulltrúa til seinni umræðu á bæjarstjórnarfundi 27. janúar n.k. Ráðgerir nefndin að yfirfara breytingartillögur á fundi sínum 22. janúar n.k.
09
Bæjarstjórn - 1107. fundur
Ólafur Þór Gunnarsson gerði grein fyrir breytingartillögum að siðareglum kjörinna bæjarfulltrúa hjá Kópavogsbæ.
Bæjarstjórn vísar afgreiðslu til síðari umræðu með tíu atkvæðum.
10
Forsætisnefnd - 35. fundur
Salvör Þórisdóttir lögfræðingur kynnti drög að breytingum á siðareglum. Lögfræðideild falið að vinna lokadrög siðareglna fyrir næsta fund.$line$$line$Málinu frestað til næsta fundar.
11
Forsætisnefnd - 27. fundur
Skv. 29. gr. sveitarstjórnarlaga ber nýrri sveitarstjórn að meta hvort ástæða sé til að endurskoða gildandi siðareglur bæjarstjórnar. Bæjarstjórn fól forsætisnefnd á fundi sínum þann 24. júní sl. að fara yfir gildandi siðareglur og gera tillögu til bæjarstjórnar um staðfestingu þeirra eða tillögur til breytinga. Á fundi forsætisnefndar þann 1. júlí var málið tekið fyrir og óskað umsagnar lögfræðideildar. Umsögn lögfræðideildar lögð fram.
Forsætisnefnd óskar eftir að lögfræðideild vinni tillögur að breytingum á siðareglum kjörinna fulltrúa og stjórnenda hjá Kópavogsbæ í samræmi við framlagt minnisblað. Þá óskar forsætisnefnd eftir því að ákvæði í starfsmannastefnu um siðareglur starfsmanna og stjórnenda verði uppfærð til samræmis við að siðareglur kjörinna fulltrúa gildi ekki um stjórnendur til framtíðar.
12
Forsætisnefnd - 26. fundur
Skv. 29. gr. sveitarstjórnarlaga ber nýrri sveitarstjórn að meta hvort ástæða sé til að endurskoða gildandi siðareglur bæjarstjórnar. Bæjarstjórn fól forsætisnefnd á fundi sínum þann 24. júní sl. að fara yfir gildandi siðareglur og gera tillögu til bæjarstjórnar um staðfestingu þeirra eða tillögur til breytinga.
Forsætisnefnd óskar eftir umsögn lögfræðideildar vegna málsins.
13
Bæjarstjórn - 1099. fundur
Lagðar fram gildandi siðareglur Kópavogsbæjar sem samþykktar voru í bæjarstjórn þann 12. maí 2009. Forseti leggur til að forsætisnefnd fari yfir gildandi siðareglur og geri tillögu til bæjarstjórnar um staðfestingu þeirra eða tillögur til breytinga.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.
14
Bæjarstjórn - 1019. fundur
<DIV>Kjörnir fulltrúar og bæjarstjóri undirrituðu siðareglur bæjarfulltrúa og stjórnenda Kópavogsbæjar.</DIV>