Forsætisnefnd - 27. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Margrét Friðriksdóttir
- Ólafur Þór Gunnarsson
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Dagskrá bæjarstjórnarfundar 15. júlí 2014.
I. Breytingartillaga á bæjarmálasamþykkt. Seinni umræða.$line$II. Kosningar.$line$III. Önnur mál - fundargerðir nefnda.
Lögð fram breytingartillaga á samþykktum um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköpum bæjarstjórnar, sem vísað var til síðari umræðu bæjarstjórnar á fundi bæjarstjórnar þann 24. júní sl. Skv. 4. tl. 9. gr. erindisbréfs forsætisnefndar ber nefndinni að fjalla um tillögur á breytingum á samþykktum bæjarins.$line$Forsætisnefnd fjallaði um málið á fundi sínum þann 1. júlí og vísaði afgreiðslu til næsta fundar. Tekið fyrir að nýju.
Lagt fram minnisblað bæjarlögmanns um stjórn Héraðsskjalasafns og greinargerð bæjarstjóra um starfsemi framkvæmdaráðs.$line$Forsætisnefnd vísar breytingartillögum til seinni umræðu bæjarstjórnar.
Skv. 29. gr. sveitarstjórnarlaga ber nýrri sveitarstjórn að meta hvort ástæða sé til að endurskoða gildandi siðareglur bæjarstjórnar. Bæjarstjórn fól forsætisnefnd á fundi sínum þann 24. júní sl. að fara yfir gildandi siðareglur og gera tillögu til bæjarstjórnar um staðfestingu þeirra eða tillögur til breytinga. Á fundi forsætisnefndar þann 1. júlí var málið tekið fyrir og óskað umsagnar lögfræðideildar. Umsögn lögfræðideildar lögð fram.
Forsætisnefnd óskar eftir að lögfræðideild vinni tillögur að breytingum á siðareglum kjörinna fulltrúa og stjórnenda hjá Kópavogsbæ í samræmi við framlagt minnisblað. Þá óskar forsætisnefnd eftir því að ákvæði í starfsmannastefnu um siðareglur starfsmanna og stjórnenda verði uppfærð til samræmis við að siðareglur kjörinna fulltrúa gildi ekki um stjórnendur til framtíðar.