Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Landsendi 19-21 (lóð nr. 24). Úthlutun hesthúsalóðar, framkvæmdaáætlun, lóðarleigusamningur.

Málsnúmer: 0902084

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2777. fundur

Frá lóðarhafa Landsenda 19-21, dags. 15. maí, lagt fram bréf þar sem óskað er eftir að tímamörk lóðarleigusamnings fyrir lóðina Landsenda 19-21 um fullklárað hús og jöfnun lóðar verði felld úr gildi, með vísan til dráttar sem hefur orðið á framkvæmdum Kópavogsbæjar við gerð aðkomuvegar austan og sunnan lóðarmarka. Skil á framkvæmdaáætlun fyrir lóðina sem uppfylli lóðarleigusamning sé háð því að Kópavogsbær standi við þau fyrirheit að hefja framkvæmdir við aðkomuveg svo lóðin yrði framkvæmdahæf, sem sé forsenda þess að hægt sé að nýta hesthúsin við Landsenda.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og bæjarlögmanns til umsagnar.