Bæjarráð - 2777. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - áheyrnarfulltrúi
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Kristín Sævarsdóttir - varafulltrúi
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Frá bæjarritara, lögð fram mánaðarskýrsla vegna starfsemi í apríl.
Lagt fram.$line$$line$Fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.
Frá bæjarritara, dags. 16. mars, tillaga að afgreiðslu umsóknar Leikfélags Kópavogs um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 691.740.-, verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum styrk að upphæð kr. 691.740.-, til greiðslu á fasteign Leikfélags Kópavogs.
Frá lögfræðideild, dags. 29. maí, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu þar sem óskað er umsagnar um umsókn Á-B ehf., kt. 500914-0330, um nýtt rekstrarleyfi til að mega reka veitingahús og skemmtistað í flokki III, á staðnum SPOT, að Bæjarlind 6, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Sótt er um afgreiðslutíma sem er lengri en ákvæði 2. mgr 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir gerir ráð fyrir, en bæjarráð staðfestir með fimm atkvæðum umbeðinn opnunartíma og að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29. maí, lögð fram umsókn um lóðina Þrúðsali 11 frá Sigurlaugu Lilju Ólafsdóttur, kt. 250386-3039 og Jóni Heiðari Ingólfssyni, kt. 071083-5009. Lagt er til að bæjarráð mæli með við bæjarstjórn að samþykkja úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda uppfyllir hann reglur til úthlutunar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Sigurlaugu Lilju Ólafsdóttur og Jóni Heiðari Ingólfssyni kost á byggingarrétti á lóðinni Þrúðsalir 11 og vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29. maí, lögð fram umsókn um lóðina Þrúðsali 13 frá Helgu Rós Benediktsdóttur, kt. 190788-3269 og Sveinbirni Inga Erlendssyni, kt. 031288-2239. Lagt er til að bæjarráð mæli með við bæjarstjórn að samþykkja úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda uppfyllir hann reglur til úthlutunar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Helgu Rós Benediktsdóttur og Sveinbirni Inga Erlendssyni kost á byggingarrétti á lóðinni Þrúðsalir 13 og vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Frá bæjarstjóra, fundinn sátu Runólfur Ágústsson, verkefnastjóri hraðlestrarverkefnisins og Björn Þór Guðmundsson, fulltrúi Landsbanka, og héldu kynningu um hraðlestrarsamgöngur á milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur.
Lagt fram.
Frá SSH, lögð fram samþykkt stjórnar SSH vegna kjarasamninga grunnskólakennara sem samþykkt var á fundi stjórnar SSH þann 1. júní 2015.
Lagt fram.
08
Landsendi 19-21 (lóð nr. 24). Úthlutun hesthúsalóðar, framkvæmdaáætlun, lóðarleigusamningur.
Frá lóðarhafa Landsenda 19-21, dags. 15. maí, lagt fram bréf þar sem óskað er eftir að tímamörk lóðarleigusamnings fyrir lóðina Landsenda 19-21 um fullklárað hús og jöfnun lóðar verði felld úr gildi, með vísan til dráttar sem hefur orðið á framkvæmdum Kópavogsbæjar við gerð aðkomuvegar austan og sunnan lóðarmarka. Skil á framkvæmdaáætlun fyrir lóðina sem uppfylli lóðarleigusamning sé háð því að Kópavogsbær standi við þau fyrirheit að hefja framkvæmdir við aðkomuveg svo lóðin yrði framkvæmdahæf, sem sé forsenda þess að hægt sé að nýta hesthúsin við Landsenda.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og bæjarlögmanns til umsagnar.
09
Lok verkefnis um framlög til sveitarfélaga vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði.
Frá varasjóði húsnæðismála, dags. 21. maí, lagt fram erindi vegna stöðvunar verkefnis um framlag til sveitarfélaga vegna sölu á félagslegum íbúðum á almennum markaði úr Varasjóði húsnæðismála. Sjóðurinn hefur nú hætt móttöku og afgreiðslu umsókna frá sveitarfélögum vegna sölu félagslegra íbúða á almennum markaði.
Bæjarráð vísar erindinu til fjármála- og hagsýslustjóra til úrvinnslu.
Frá Skákstyrktarsjóði Kópavogs, dags. 5. maí, lagt fram erindi þar sem tilkynnt er um að sjóðurinn geti ekki lengur tekið við erindum sem berast Kópavogsbæ og er mælst til þess að Kópavogsbær áframsendi framvegis engar styrkumsóknir. Einnig tilkynnt um að sjóðurinn verði að leggja af styrkveitingum til leik- og grunnskóla í Kópavogi í ljósi bágrar fjárhagsstöðu.
Lagt fram.
Frá skólastjóra Hörðuvallaskóla, dags. 30. maí, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir styrk vegna þátttöku skáksveitar skólans á Norðurlandamóti í Danmörku.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita styrk að upphæð kr. 120.000.
1393. fundur félagsmálaráðs í 8. liðum.
Lagt fram.
Kl. 10.10 vék Theódóra Þorsteinsdóttir af fundi.
Bæjarráð frestar afgreiðslu.
Birkir Jón Jónsson, Ólafur Þór Gunnarsson og Kristín Sævarsdóttir taka undir bókun í lið 8 í fundargerðinni.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, Karen Halldórsdóttir og Hjördís Ýr Johnson lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Óskað verði eftir upplýsingum frá velferðarráðuneytinu hver staðan er á innleiðingu þessa samnings hjá ríkisvaldinu og hversu lengi hann hefur verið í málsmeðferð ráðuneytisins.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Karen Halldórsdóttir og Hjördís Ýr Johnson"$line$Ólafur Þór Gunnarsson og Kristín Sævarsdóttir taka undir bókun bæjarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks.
58. fundur leikskólanefndar í 13. liðum.
Lagt fram.
1260. fundur skipulagsnefndar í 15. liðum.
Lagt fram.
Frá skipulagsstjóra, dags. 2. júní, lagt fram að nýju erindi THG arkitekta f.h. lóðarhafa þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Boðaþings 14-16 og 18-20, að lokinni grenndarkynningu. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi og vísar erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Frá skipulagsstjóra, dags. 2. júní, lagt fram að nýju erindi Púkk arkitekta f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Gulaþings 25, þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi þar sem komið er til móts við innsendar athugasemdir og vísar erindinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Frá lögfræðideild, dags. 2. júní, lögð fram umsögn vegna breytinga á nýrri lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar.
Lagt fram.$line$$line$Bæjarlögmaður og lögfræðingur á lögfræðideild sátu fundinn undir þessum lið.