Skógarhjalli hraðahindranir / Dalvegur gangbraut
Málsnúmer: 0904223
Ferill máls
01
Umhverfis- og samgöngunefnd - 78. fundur
Frá umhverfissviði lagðar fram útfærslur og samanburður á umferðarlausnum við gatnamót Hlíðarhjalla og Dalvegar.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti með atkvæðagreiðslu framlagða útfærslu á umferðarstýrðum umferðarljósum við gatnamót Hlíðarhjalla og Dalvegar í samræmi við umferðarskipulag Kópavogsbæjar 2012. Hjördís Ýr Johnson, Hreiðar Oddsson, Ísól Fanney Ómarsdóttir og Sigurður Grétarsson greiddu atkvæði með tillögunni.
Einar Baldursson greiddi atkvæði gegn tillögunni.
Einar Baldursson bókaði að hann mælir með hringtorgi.
Sigurður Grétarsson bókaði að ljósstýring tæki mið af hjólareiðafólki og skynjaði nærveru þeirra.
Hreggviður Norðdahl bókaði að skipulagsvinnu við austurhluta Dalvegar verði hraðað. Hjördís Ýr Johnson, Hreiðar Oddsson, Ísól Fanney Ómarsdóttir, Sigurður Grétarsson og Einar Baldursson tóku undir bókunina.
02
Umhverfis- og samgöngunefnd - 76. fundur
Frá umhverfissviði lögð fram tillaga að hringtorgi við gatnamót Hlíðarhjalla og Dalvegar.
Umhverfis- og samgöngunefnd óskaði eftir frekari upplýsingum um útfærslur og samanburð á framlögðum tillögum frá deildarstjóra gatnadeildar umhverfissviðs. Nefndin óskaði eftir svari á næsta fund nefndarinnar.
03
Umhverfis- og samgöngunefnd - 75. fundur
Á 1274 fundi skipulagsnefndar lagði skipulagsnefnd til að sett verði upp ljósastýring á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Á 2815 fundi bæjarráðs, Frá skipulagsstjóra, dags. 22. mars, lagt fram frá umhverfis- og samgöngunefnd, erindi Sigurðar Arnars Sigurðssonar varðandi úrbætur á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla dags. 29.2.2016. Skipulagsnefnd lagði til að sett yrði upp ljósastýring á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar umsögn skipulagsnefndar til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.
Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til umhverfissviðs og skila tillögu að útfærslu og kostnaðaráætlun á hringtorgi á umræddum stað á næsta fundi nefndarinnar.$line$Hreggviður Norðdahl mætti til fundar kl. 16:43
04
Bæjarráð - 2815. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 22. mars, lagt fram frá umhverfis- og samgöngunefnd, erindi Sigurðar Arnars Sigurðssonar varðandi úrbætur á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla dags. 29.2.2016. Skipulagsnefnd lagði til að sett yrði upp ljósastýring á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarráð vísar umsögn skipulagsnefndar til umhverfis- og samgöngunefnar til úrvinnslu.
05
Skipulagsnefnd - 1274. fundur
Frá umhverfis- og samgöngunefnd:$line$Lagt fram erindi Sigurðar Arnars Sigurðssonar varðandi úrbætur á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla dags. 29.2.2016.
Skipulagsnefnd lagði til að sett verði upp ljósastýring á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
06
Umhverfis- og samgöngunefnd - 74. fundur
Lagt fram erindi Sigurðar Arnars Sigurðssonar varðandi úrbætur á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla dags. 29.2.2016.
Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til umsagnar skipulagsnefndar í tengslum við endurskoðun á deiliskipulagi austurhlutar Dalvegar.
07
Umhverfis- og samgöngunefnd - 73. fundur
Lagt fram erindi Sigurðar Arnars Sigurðssonar varðandi úrbætur á gatnamótum Dalvegar og Hlíðarhjalla dags. 6.1.2016 ásamt fylgigögnum.
Framkvæmdir á umræddum gatnamótum eru ekki á fjárhagsáætlun 2016. Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til gerðar næstu fjárhagsáætlunar.
08
Umhverfis- og samgöngunefnd - 66. fundur
Lagt fram erindi Sigurðar Arnars Sigurðssonar varðandi Skógarhjalla dags. 15.1.2015.$line$Lagðar fram tillögur umhverfissviðs um útfærslu á umræddum stað.$line$Lagt fram bréf Sigurðar Arnars Sigurðssonar dags. 18.6.2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd ítrekar við umhverfissvið að skila umsögn til nefndarinnar sbr. fund 18.2.2015.$line$Frestað.
09
Umhverfis- og samgöngunefnd - 62. fundur
Lagt fram erindi Sigurðar Arnars Sigurðssonar varðandi Skógarhjalla dags. 15.1.2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að gera tillögu að útfærslu á umræddum stað.
10
Bæjarráð - 2520. fundur
Frá íbúum í Skógarhjalla, dags. 1/10, ítrekun á beiðni íbúa um að hraðahindrun verði komið fyrir í götunni fyrir framan hús númer 6.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs til afgreiðslu.

11
Bæjarráð - 2519. fundur
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 29/9, umsögn um erindi íbúa í Skógarhjalla, varðandi hraðahindrun í götunni. Lagt er til að bæjarráð hafni erindinu, þar sem gatan er stutt botngata og ekki séð hverju hraðahindrun á að koma til leiðar.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

12
Bæjarráð - 2515. fundur
Frá sviðsstjóra þjónustusviðs Strætó bs., tölvup. dags. 31/8, umsögn sem óskað var eftir í bæjarráði 20/8 um erindi íbúa Skógarhjalla, þar sem óskað var eftir að biðstöð yrði færð til.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindi íbúa við Skógarhjalla og felur bæjarritara að svara erindinu.

13
Bæjarráð - 2514. fundur
Frá íbúum Skógarhjalla 6, ódags., varðandi umferðaröryggi á svæðinu.

Bæjarráð óskar umsagnar sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs og framkvæmdastjóra Strætó bs.

14
Umferðarnefnd - 362. fundur
Erindi frá íbúa í Auðbrekku vegna hraðaminnkandi aðgerða.
Umferðarnefnd felur Tæknideild að leita leiða til að leysa þau vandamál sem hafa skapast við lokun Skeljabrekku við Nýbýlaveg og koma með lausnir á næsta fund.
15
Umferðarnefnd - 362. fundur
Kynntur samanburður á umferðahraða milli ára.%0D
Lagt fram.
16
Umferðarnefnd - 362. fundur
Frá íbúum í Skógarhjalla 6 þar sem farið er fram á haraðahindrun í Skógarhjalla. Einnig er farið fram á að stoppistöð Strætó á Dalvegi verði flutt eða að umferð gangandi yfir Dalveg tryggð.
Umferðarnefnd telur ekki rétt að setja hraðahindrun í Skógarhjalla. (gatan er mjög stutt)

Umferðanefnd minnir á að ætlunin er að seja ljósastýringu á gatnamót Dalvegar og Hlíðarhjalla og leysir það vandamál gangandi vegfarenda.