Umhverfis- og samgöngunefnd - 62. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Hreiðar Oddsson - aðalmaður
- Sigurður M Grétarsson - aðalmaður
- Einar Baldursson - aðalmaður
- Arnar Örn Ingólfsson - varamaður
- Hreggviður Norðdahl - áheyrnarfulltrúi
- Gylfi Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
- Birgir Hlynur Sigurðsson
- Karl Eðvaldsson
- Bjarki Þórir Valberg
Ritari
- Bjarki Valberg
Arnar Örn Ingólfsson tók sæti fyrir Hjördísi Ýr Johnson.
Hreiðar Oddsson varaformaður sá um fundarstjórn í fjarveru formanns Hjördísar Ýrar Johnson.
Dagskrá fundar
Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi og leigugjaldi 2015 ásamt yfirlitsmynd frá garyrkjustjóra dags. 11.2.2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma framlagðar tillögur.$line$Garðyrkjustjóri sat fundinn undir þessum lið.
Lagt fram erindi Sigurðar Arnars Sigurðssonar varðandi Skógarhjalla dags. 15.1.2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að gera tillögu að útfærslu á umræddum stað.
Lagt fram erindi frá íbúa við Lækjarhjalla, dags. 15.12.2014 varðandi gatnamót Hlíðarhjalla og Dalvegar. Á fundi bæjarráðs 15.1.2015 var erindinu til umhverfis-og samgöngunefndar til úrvinnslu.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að gera tillögu að útfærslu á umræddum stað.
Lagt fram erindi frá Náttúran.is varðandi rekstur miðlægs gagnasafns og upplýsingaveitu um endurvinnslu og sorphirðu dags. 21.1.2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fresta ákvörðun þar til frekari þróun og fleiri sveitarfélög hafa staðfest þátttöku í verkefni.
Lagt fram erindi Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur varðandi Melgerði dags. 4.12.2014.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að vísa erindinu til úrvinnslu umhverfissvið.
Lagt fram erindi frá formanni íslenska frisbígolfsambandsins dags. 20.1.2015.
Hreiðar Oddson leggur fram tillögu að fresta erindinu og kalla eftir frekari gögnum fyrir næsta fund nefndarinnar. $line$Hreiðar Oddsson, Arnar Ingólfsson og Sigurður Grétarsson greiddu atkvæði með tillögunni en Einar Baldursson greiddi atkvæði gengn tillögunni.$line$Einar Baldursson bókar að hann vill fresta erindinu á meðan vinna við heildrænt skipulag Kópavogsdals á sér stað.$line$Gylfi Sigurðsson vék af fundi.
Lagt fram erindi Hjólafærni varðandi hjólaslóða í Kópavogi dags. 29.1.2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd hafnar einróma erindinu en samþykkir einróma að fela umhverfisfulltrúa að vinna tilraunaverkefni í tenglum við þá hjólaslóða sem eru til staðar hjá sveitarfélaginu.
Lagt fram erindi Hjólafærni varðandi hjólaskóla Dr. Bæk dags. 29.1.2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfisfulltrúa að vinna áfram með verkefnið og leita umsagnar menntasviðs með að vera með þriggja stunda kennslu í hjólafærni í hverjum grunnskóla Kópavogs á vordögum.
Lögð fram tillaga að umsókn að Bláfána 2015 fyrir Ýmishöfn.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma fyrirliggjandi umsókn að Bláfána 2015 fyrir Ýmishöfn og vísar erindinu til bæjarráðs.
Lagt fram erindin varðandi frágang og umhirðu á Kjóavöllum.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að fela umhverfissviði að sjá til þess að orðið verði við ábendingum heilbrigðiseftirlits Hafnafjarðar- og Kópavogssvæðis.
Lagt fram erindi varðandi umhirðu og umgengni á nærumhverfi Kópavogs.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að styðja umhverfissvið til þess að umhirða og umgengni í Kópavogi verði betri.
Lagt fram erindi deildarstjóra gatnadeildar varðandi umferðarhraða á Markavegi dags. 12.2.2015.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir einróma að á Markavegi verði auðkenndur 30 km umferðahraði sem er í samræmi við umferðaáætlun Kópavogsbæjar 2012. Umhverfis- og samgöngunefnd vísar erindinu til bæjarráðs.