Beint í efni
Til baka í fundargerðir
Samstarfssamningur við Skógræktarfélag Kópavogs
Málsnúmer: 0905315
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2761. fundur
Frá bæjarritara, dags. 30. janúar, tillaga um að samningur Kópavogsbæjar við Skógræktarfélag Kópavogs verði framlengdur um eitt ár, með breytingum sem finna má í meðfylgjandi samningsdrögum.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.
02
Skólanefnd - 77. fundur
Mál kynnt.
Guðrún Jónína Guðjónsdóttir, áheyrnafulltrúi framsóknarflokksins, vék af fundi kl. 18:55. Hafsteinn Karlsson, fulltrúi skólastjóra vék af fundi kl. 19:00.$line$$line$Eftirfandi bókun var lögð fram á fundinum: "Neðangreindir fulltrúar í skólanefnd Kópavogs fagna því samkomulagi sem bæjarstjórn hefur gert við Skógræktarfélag Kópavogs um frístunda- og þjónustuhús í Guðmundarlundi. Húsið skal nota sem fræðslumiðstöð og skulu grunn- og leikskólabörn hafa forgang um afnot af því. Með aðstöðunni skapast vettvangur fyrir heilsteypta umhverfismennt í skólum bæjarins og öfluga útikennslu í anda sjálfbærni og umhverfisstefnu Kópavogs." $line$Margrét Friðriksdóttir, Helgi Magnússon, Ólafur Örn Karlsson, Ragnhildur Reynisdóttir og Bergljót Kristinsdóttir$line$$line$"Ég undirritaður tek undir bókun minnihluta bæjarstjórnar Kópavogs 28.október sl. og þar sem samningurinn er staðreynd er brýnt að skólanefnd fái að fylgjast með nýtingu hússins hvað varðar skólastarf." Gísli Baldvinsson.
03
Bæjarstjórn - 1104. fundur
Frá sviðsstjórum stjórnsýslu-, mennta- og umhverfissviðs, lögð fram að nýju drög að samningi við Skógræktarfélag Kópavogs um framkvæmdir við frístundahús í Guðmundarlundi. $line$Bæjarráð vísar drögunum til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$Jafnframt lögð fram kostnaðaráætlun vegna framkvæmda, umsögn þriggja sviðsstjóra frá 8. janúar sl., skýrsla Deloitte um byggingarkostnað frá 25. apríl sl. og svar við fyrirspurnum úr bæjarráði þann 23. október.
Birkir Jón Jónsson, Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir lögðu til að afgreiðslu málsins væri frestað.$line$$line$Tillögu um frestun var hafnað með sjö atkvæðum en fjórir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni. Atkvæði féllu þannig að Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen E. Halldórsdóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Jón Finnbogason, Theódóra S Þorsteinsdóttir og Sverrir Óskarsson greiddu atkvæði gegn tillögunni en Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Birkir Jón Jónsson og Ólafur Þór Gunnarsson greiddu atkvæði með henni.$line$$line$Birkir Jón Jónsson, Pétur Hrafn Sigursson og Ása Richardsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Við teljum ekki rétt að afgreiða þennan samning í dag og því lögðum við til að málinu verði frestað. Heildar fjárfesting vegna verkefnisins liggur ekki fyrir né heldur hver rekstrarkostnaður verður þegar húsið er tilbúið. En síður liggur fyrir heildstæð áætlun um notkun hússins þó sannarlega hafa verið reifaðar hér í dag góðar hugmyndir þar um.$line$Ása Richardsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Petur Hrafn Sigurðsson"$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Heildarkostnaður kemur fram í fyrirliggjandi gögnum en úthlutun til rekstrar mun taka mið af svigrúmi í fjárhagsáætlun hverju sinni. Ljóst er að húsið mun fyrst og fremst nýtast til menntunar og útivistar leik- og grunnsnkólabarna.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen E. Halldórsdóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Jón Finnbogason, Theódóra S Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson"$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir framlögð drög að samkomulagi við Skógræktarfélag Kópavogs með sjö atkvæðum en fjórir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði. Atkvæði féllu þannig að Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen E. Halldórsdóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Jón Finnbogason, Theódóra S Þorsteinsdóttir og Sverrir Óskarsson greiddu atkvæði með tillögunni en Ása Richardsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Petur Hrafn Sigurðsson og Ólafur Þór Gunnarsson greiddu ekki atkvæði.
04
Bæjarráð - 2747. fundur
Frá sviðsstjórum stjórnsýslu-, mennta- og umhverfissviðs, lögð fram að nýju drög að samningi við Skógræktarfélag Kópavogs um framkvæmdir við frístundahús í Guðmundarlundi. Á fundi bæjarráðs þann 16. október var málinu vísað til næsta fundar ráðsins.
Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn og bókun:$line$"Ljóst er að byggingarkostnaður frístundahúss við Guðmundarlund verður gífurlegur ef marka má áætlanir. Gert er ráð fyrir að Kópavogsbær eigi enn eftir að setja 62,1 m.kr. til verksins og er þá heildarkostnaður við bygginguna 135,2 m.kr. Húsið er 255 fm þannig að byggingakostnaður per fm er rúmar 530 þúsund krónur. Af þessu tilefni legg ég fram eftirfarandi spurningar:$line$Óskað er eftir sundurliðun áfallins kostnaðar vegna byggingar frístundahússins en hann er áætlaður 73,1 m.kr.$line$Hver hafa fjárframlög Kópavogsbæjar til Skógræktarfélagsins verið árin 2009 ? 2014?$line$Hver mun hafa eftirlit með byggingarframkvæmdum við að fullgera húsið?$line$Hver mun greiða rekstrarkostnað húsnæðisins eftir að það hefur verið tekið í notkun? Liggja fyrir áætlanir hver árlegur rekstrarkostnaður verður.$line$Hver mun sjá um starfsemina sem í húsinu verður? Liggja fyrir áætlanir um árlegan kostnað vegna þeirrar starfsemi?$line$Hvernig var hlutfall eignahluta reiknað út skv. þessu samkomulagi.$line$Ég tel brýnt að nýkjörin bæjarstjórn fái svör við þessum spurningum áður en lengra er haldið. Hér er um gríðar miklar fjárhæðir að ræða sem greiddar verða af almannafé og því mikilvægt að kjörnir fulltrúar hafi öll þau gögn fyrir hendi sem málinu viðkemur.$line$Birkir Jón Jónsson"$line$$line$Bæjarráð vísar drögunum til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
05
Bæjarráð - 2747. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 21. október, lögð fram endurskoðuð kostnaðaráætlun við að fullgera bygginguna í Guðmundarlundi.
Lagt fram.
06
Bæjarráð - 2746. fundur
Frá sviðsstjórum stjórnsýslu-, mennta- og umhverfissviðs, drög að samningi við Skógræktarfélag Kópavogs um framkvæmdir við frístundahús í Guðmundarlundi.
Lagt fram og vísað til næsta fundar bæjarráðs.
07
Bæjarstjórn - 1096. fundur
Frá bæjarritara, lagt fram að nýju erindi Skógræktarfélags Kópavogs frá 2. desember sl., sem frestað var á fundi bæjarráðs þann 6. mars sl. Bæjarráð vísaði afgreiðslu erindisins til bæjarstjórnar.
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn og lagði til að málinu verði frestað:
"1. Samanburður og mat á byggingarkostnaði.
2. Yfirlit yfir verksamninga við formann og aðra verktaka. Hafa þeir verksamningar verið samþykktir af stjórn og hefur stjórnarsamþykktum verið fylgt?
3. Hver eru raunveruleg laun formanns og aðrar greiðslur að meðtöldum leigutekjum fyrir tæki og vinnuskúr?
4. Hverjar eru greiðslur til annarra stjórnarmanna?
5. Hvernig var staðið að framkvæmdum? Voru verkáfangar boðnir út eða ákvað formaður einhliða hverjir voru valdir í einstaka verkþætti? Eru til stjórnunarsamþykktir fyrir þeim gjörningum?
Svör óskast fyrir næsta fund bæjarstjórnar.
Gunnar Ingi Birgisson"
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi tillögu f.h. fimm bæjarfulltrúa:
"Bæjarstjórn samþykkir að taka upp viðræður við forsvarsmenn Skógræktarfélags Kópavogs um kaup Kópavogsbæjar á ráðandi hluti í uppbyggingu húsnæðiskosts í Guðmundarlundi. Samkomulag þess efnis verði lagt fyrir bæjarstjórn. Aukinheldur samþykkir bæjarstjórn að ráðstafa kr. 10.000.000,- (af málaflokki 32 eignasjóði) til áframhaldandi uppbyggingar húsnæðiskosts í Guðmundarlundi gegn eignarhaldi.
Greinargerð:
Í minnisblaði þriggja sviðsstjóra, dags. 8. janúar 2014, eru tilgreindir fjórir kostir og er framanrituð tillaga í samræmi við 4. kost minnisblaðsins sem er svofelldur:
?Kópavogsbær leggi til fjármagn til að fullgera húsið og eignist meirihluta í húsnæðinu en Skógræktarfélagið haldi eftir eignarhlut. Húsið verði notað sem fræðslumiðstöð líkt og upphaflegar hugmyndir gerðu ráð fyrir, þar sem m.a. skólabörn í Kópavogi hefðu aðgang að."
Ómar Stefánsson, Aðalsteinn Jónsson, Hreiðar Oddsson, Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Björnsdóttir"
Bæjarstjórn hafnar tillögu Gunnars Inga Birgissonar um frestun á afgreiðslu málsins með fimm atkvæðum en fimm greiddu atkvæði með henni. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu Ómars Stefánssonar, Aðalsteins Jónssonar, Hreiðars Oddssonar, Ármanns Kr. Ólafssonar og Margrétar Björnsdóttur með sex atkvæðum gegn fjórum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði.
08
Bæjarráð - 2730. fundur
Frá bæjarritara, erindi Skógræktarfélags Kópavogs frá 2. desember sl., sem frestað var á fundi bæjarráðs þann 6. mars sl.
Bæjarráð vísar afgreiðslu erindisins til bæjarstjórnar.Bókun Guðríðar Arnardóttur:"Ég sé enga ástæðu til þess að vísa málinu til bæjarstjórnar þar sem málið hefur verið rætt í þaula á þeim vettvangi."
09
Bæjarráð - 2729. fundur
Frá Deloitte, dags. 25. apríl, skýrsla um byggingarkostnað vegna Leiðarenda 3, húss Skógræktarfélags Kópavogs 2009-2013.
Lagt fram.
10
Bæjarstjórn - 1092. fundur
Hlé var gert á fundi kl. 16:30. Fundi var fram haldið kl. 16:31.Kl. 17:55 vék Guðríður Arnardóttir af fundi og tók Guðrún Jóna Jónsdóttir sæti hennar á fundinum.Hlé var gert á fundi kl. 18:15. Fundi var fram haldið kl. 18:28.
11
Bæjarráð - 2722. fundur
Frá bæjarritara, skýrsla frá Skógræktarfélagi Kópavogs vegna erindis félagsins frá 2. desember sl.
Lagt fram. Afgreiðsla á erindi Skógræktarfélagsins frá 2. desember sl. frestað.
12
Bæjarráð - 2714. fundur
Frá sviðsstjórum stjórnsýslu-, mennta- og umhverfissviðs, dags. 8. janúar, umsögn um erindi Skógræktarfélags Kópavogs, sem óskað var eftir á fundi bæjarráðs þann 12. desember sl.
Lagt fram. Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:"Óska eftir að sundurliðað kostnaðaryfirlit vegna byggingar Skógræktarfélagsins í Guðmundarlundi og afrit af samningum við byggingaraðila verði lagðar fyrir bæjarráð áður en nokkrar ákvarðanir verði teknar af hálfu bæjarins.Guðríður Arnardóttir"
13
Bæjarráð - 2712. fundur
Lagt fram að nýju erindi frá stjórn Skógræktarfélags Kópavogs, dags. 2. desember, mál sem frestað var á fundi bæjarráðs 5/12. Una María Óskarsdóttir lagði til að bæjarráð skipi viðræðuhóp sem ræði við fulltrúa Skógræktarfélagsins um erindi félagsins.$line$
Bæjarráð felur sviðsstjórum stjórnsýslu-, mennta- og umhverfissviðs að ræða við fulltrúa Skógræktarfélags Kópavogs.
14
Bæjarráð - 2711. fundur
Erindi frá stjórn Skógræktarfélags Kópavogs, dags. 2. desember.
Fulltrúar frá Skógræktarfélagi Kópavogs sátu fundinn undir þessum lið.Una María Óskarsdóttir lagði til að bæjarráð skipi viðræðuhóp sem ræði við fulltrúa Skógræktarfélagsins um erindi félagsins.Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
15
Bæjarráð - 2705. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 22.október, greinargerð vegna fyrirspurnar um framvindu samskipta milli Kópavogsbæjar og Skógræktarfélags Kópavogs.
Lagt fram.
16
Bæjarráð - 2703. fundur
Pétur Ólafsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
"Á síðasta fundi bæjarráðs voru drög að samningi milli Kópavogsbæjar og Skógræktarfélags Kópavogs lögð fram um leigu bæjarins á húsnæði félagsins í Guðmundarlundi undir leikskólastarfsemi. Í kjölfarið var drögunum vísað til umsagnar leikskólanefndar. Þótt samningsdrögin séu ekki lögð fyrir á þessum fundi vil ég með nokkrum spurningum leggja mikla áherslu á að samningurinn verði endurskoðaður frá grunni.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>
1 Af hverju er gert ráð fyrir að bærinn reiði fram 38.000.000 kr. á fjórum árum í leigusamningi. Betra væri ef bærinn greiddi mánaðarlega upphæð eins og í nær öllum leigusamningum hér á landi.<o:p></o:p>
2 Hvers vegna er gert ráð fyrir svo löngum leigutíma? Til samanburðar er hann lengri en tímabil Aðalskipulags.<o:p></o:p>
3 Í drögunum sem lögð voru fyrir á síðasta fundi er verið að handvelja húsnæði undir leikskólastarfsemi í bænum. Hefur meirihlutinn leitað af sér allan grun um að fleiri aðilar hefðu áhuga á að leigja bænum húsnæði undir slíka starfsemi?<o:p></o:p>
4 Hver er fulltrúi skógræktarfélagsins í samningaviðræðunum við Kópavogsbæ?<o:p></o:p>
5 Er búið að handsala einhverja útgáfu af þessum samningi, er undirritun hans bara formsatriði?<o:p></o:p>
17
Bæjarráð - 2702. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, drög að húsaleigusamningi og minnisblað frá sviðsstjóra menntasviðs.
Guðríður Arnardóttir óskaði eftir frestun á afgreiðslu málsins þar sem gögn bárust seint.
Bæjarráð frestar afgreiðslu en vísar jafnframt erindinu til leikskólanefndar til umfjöllunar.
18
Bæjarráð - 2506. fundur
Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 26/5, drög að samningi milli Skógræktarfélags Kópavogs og Kópavogsbæjar.