Bæjarráð - 2746. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir
- Hjördís Ýr Johnson
- Pétur Hrafn Sigurðsson
- Birkir Jón Jónsson
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - varafulltrúi
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Frá bæjarritara, mánaðarskýrsla yfir starfsemi Kópavogsbæjar í ágúst 2014.
Lagt fram.
Frá lögfræðideild, dags. 10. október, lagður fram úrskurður í máli vegna Auðbrekku 3, þar sem niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála var að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun.
Lagt fram.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, umsögn um erindi sóknarnefndar Lindakirkju varðandi frágang bílastæða við kirkjuna. Lagt er til að bærinn fái afnotarétt af bifreiðastæðum við Lindakirkju, að fráveitulagnir verði lagðar í bílastæðin á þessu ári og að á næsta fjárhagsári verði 15 m.kr. varið í að leggja slitlag á bílastæðin við kirkjuna.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum og felur bæjarlögmanni samningsgerð við sóknarnefndina vegna málsins.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 13. október, tilboð opnuð í verkið "grjótvörn og landfylling á Kársnesi". Eftirfarandi tilboð bárust:$line$Bjóðandi Lesið upp Niðurstaða eftir$line$ við opnun endurútreikninga$line$Loftorka ehf 59.306.400 59.306.400$line$Suðurverk ehf$line$- frávik 70.903.416 70.902.881$line$Suðurverk ehf 71.937.817 71.940.279$line$Hálsafell ehf 81.123.200 81.123.200$line$Óskaverk ehf. 84.936.920 84.936.920$line$Íslenskir Aðal-$line$verktakar ehf 98.373.931 98.373.931$line$Norðurtak ehf 114.592.500 114.592.500$line$Kostnaðaráætlun 74.792.900 74.792.900$line$$line$Lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Loftorku ehf.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Loftorku ehf.
Frá forsætisráðuneytinu, dags. 10. október, óskað upplýsinga varðandi framkvæmd verðhækkana á opinberum gjaldskrám og þjónustusamningum.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.
Frá lóðarhöfum Álmakór 17a og 17b, dags. 14. október, óskað eftir rökstuðningi fyrir niðurstöðu skipulagsnefndar sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 23. september sl., varðandi beiðni um að suðurendi Álmakórs verði hækkaður.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til úrvinnslu.
1377. fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
Félagsmálaráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar tillögur að breytingum á 16., 17. og 19. gr. í reglum, sbr. lið 7 í fundargerð 13. október. Tillögum er vísað til bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir tillögur að breytingum á reglum um útleigu félagslegra íbúða með fimm atkvæðum.
51. fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.
820. fundargerð í 10 liðum.
Lagt fram.
342. fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu:$line$"Í þeim tilfellum sem Kópavogsbær gefur út reikninga vegna niðurgreiddrar þjónustu við bæjarbúa, skal þar koma fram hvað þjónustan kostar í raun, hversu há upphæð er niðurgreidd af Kópavogsbæ og hversu há upphæð notandi þjónustunnar greiðir.$line$Greinargerð:$line$Það að sýna raunkostnað við þjónustu sem Kópavogsbær veitir eykur kostnaðarvitund þeirra sem þjónustunnar njóta. Ennfremur er það eðlilegt að bæjarbúar sjái hvað sú þjónusta sem þeir njóta frá Kópavogsbæ kostar í raun.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir."
Bæjarráð vísar tillögunni til umsagnar bæjarritara.$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, færir til bókar að sundurgreining kostnaðar kemur nú þegar fram á greiðsluseðlum vegna leikskólagjalda.
Frá bæjarstjóra, drög samnings Smárabyggðar ehf., Regins ehf. og Kópavogsbæjar um undirbúning, skipulagsvinnu og uppbyggingu eignarlandsins sunnan Smáralindar. Samkomulagið felur í sér samstarf eigenda landsins við skipulagsyfirvöld um skipulag og uppbyggingaráform á svæðinu. Gert er ráð fyrir því að samkomulagið komi til endurskoðunar áður en nýtt skipulag tekur gildi á svæðinu.
Lagt fram og vísað til næsta fundar bæjarráðs.
Frá sviðsstjórum stjórnsýslu-, mennta- og umhverfissviðs, drög að samningi við Skógræktarfélag Kópavogs um framkvæmdir við frístundahús í Guðmundarlundi.
Lagt fram og vísað til næsta fundar bæjarráðs.
Frá bæjarstjóra, dags. 16. október, svar við fyrirspurn frá Birki Jóni Jónssyni.
Lagt fram.
Margrét Júlía Rafnsdóttir lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Kópavogsbær afli upplýsinga um kostnað barnafjölskyldna í sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, hvað varðar daggæslu, leikskóla, dægradvöl í grunnskólum og skólamáltíðir og beri saman við kostnað barnafjölskyldna í Kópavogi. $line$Margrét Júlía Rafnsdóttir"$line$$line$Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.